Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 18
304
KIUKJUUITIB
prófasta, þótt enn sé þar allmikill munur á. Jákvætt er það í
þessu sambandi, að prófastar fá liér eftir kostnað af embættis-
ferðum sínum endurgreiddan úr ríkissjóði. Þessi prófastsdæmi
sameinast: Skaftafells-, Mýra- og Borgarf jarðar-, Dala- og Snæ-
fellsness-, Isafjarðar-, Stranda- og Húnavatns-, Þingeyjar-pró-
fastsdæmi.
Þá eru 15 prestaköll niður lögð: Kirkjubær í Hróarstungu,
Hof í Öræfum, Staðarhraun, Breiðabólstaður á Skógaströnd,
Hvoll í Dölum, Flatey á Breiðafirði, Brjánslækur, Hrafnseyri,
Núpur í Dýrafirði, Ögurþing, Staður í Grunnavík, Tjörn á
Vatnsnesi, Hvammur í Laxárdal, Barð í Fljótum, Grímsey.
Öllum er það kunnugt, að nálega öll þessi köll liafa verið
óskipuð langtímum saman að undanförnu, eða þá að grann-
köllin, sem þau falla undir, liafa verið það. Hof í Öræfum
befur lengst verið óskipað, síðan 1931. Er algerlega óraunliæft
að gera ráð fyrlr umskiptum í þessu efni í fyrirsjáanlegri fram-
tíð. Þó að skiljanlegt sé og allrar virðingar vert, að því fólki,
sem nánast á lilut að máli þyki mikið fyrir því að kveðja fyrir
fullt og allt vonina um, að fornfrægur staður verði setinn að
nýju af presti, þá er flestum ljóst, að tálvon gerir engum
gagn. I annan stað skilja allir, að sú lagabreyting, sem orðin
er, breytir engu í reyndinni um prestsþjónustu í þessum byggð-
um, miðað við það, sem verið liefur svo árum eða áratuguni
skiptir.
Nokkur ný embætti eru lögfest og kemur það þegar nokkuð
á móti þeirri fækkun, sem liér var rætt um. Heimilt er, ef þörf
krefur, að ráða fleiri menn en einn til þess að gegna farprests-
þjónustu. Tveir aðstoðaræskulýðsfulltrúar eru kirkjunni lieim-
ilir til starfa með æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar. Þá er heim-
ilt að ráða prestvígða menn lil sérstakrar sjúkrahúsa- og
fangahúsaþjónustu. Og loks er lögfest embætti sendiráðsprests
í Kaupmannaliöfn.
Hér er um að ræða 4 ný embætti liið ininnsta, en ákvæðiu
um farprest, svo og um sjúkrahúsa- og fangaþjónustu, eru þa^
rúm, að þau geta veitt meira svigrúm með tímanum.
En þegar meta skal hin nýju lög í lieild skiptir mestu sa
bluti þeirra, sem fjallar um kristnisjóö. Ákvæðin um bann
skáru frá byrjun úr um gildi þessarar endurskoðunar (yrl1
kirkjuna og það verður að teljast grundvallarsigur, að það mál