Kirkjuritið - 01.07.1970, Side 29
KIRKJURITIÐ
315
Kirkju] )inn; frumvarp er miSaði að lausn organistavandamáls-
ins.
Þórarinn Þórarinsson skýrði frá störfum fvrrverandi Skál-
holtsnefndar n« lagði fram kynningarbækling um málið.
Séra Bernliarður Guðmundsson kynnti störf fjölmiSlunar-
nefndar. Kom ])ar m. a. fram að cand. theol. Haukur Agústsson
befur verið ráðinn til tveggja mánaða námsferðar til Irlands á
næsta hausti til að kynna sér stjórn útvarpsþátta.
Séra Þorbergur Kristjánsson bar fram eftirfarandi tillögu,
sem var samþykkt með öllum þorra atkvæða.
5,Jafnframt því að Prestastefna Islands 1970 óskar eftir auk-
inni og bættri kristindómsfræðslu í skólum, minnir synodan á
mikilvægi fermingarundirbúningsins í kristilegri uppfræðslu
°g leggur áherzlu á, að prestar reyni að bæta bana og samræma
eftir föngum, sbr. síðustu samþykkt prestastefnunnar um það
efni.“
Lögð var fram skýrsla æskulýðsfulltrúa, minnst á æskulýðs-
starfið og Æskulýðsblaðið og húsmæðrakóla kirkjunnar á
Löngumýri.
Morgunbænir á prestastefnunni fluttu þeir séra Sigurjón
Einarsson og séra Jón Einarsson, en ritarar voru séra Bolli
Gústafsson, séra Jón Einarsson, séra Kolbeinn Þorleifsson og
sera Þórballur Höskuldsson.
Að kvöldi síðasta fundardags sátu prestar boð biskups að
beimili lians. Biskupsfrúin bauð prestskonum til sín á fyrsta
Lindardegi.
Skálholtshátífí fór frani 26. júlí. Var liún fjölsótt, enda veður hið fegursta
Var og fjölþætt og hátíðlcg.
Skírnarathöfn í Surtsey. — Morgunblaðið skýrði frá því 3. júlí s. 1. að
kaþólskur prestur, bandarískur, faðir Skohan að nafni, hefði skírt einn
landa sinn úti í Surtsey. Báðir voru í hópi vísindamanna, er voru þarna
a rannsóknarferð. — Þetta mun ef til vill einstæður athurður í kirkjusög-
'•nni, að maður hafi verið skírður á stað, sem svo nýlega er orðinn til.