Kirkjuritið - 01.07.1970, Qupperneq 48
Lýðskólinn í Skálholti
Alþjóð veit að unnið er að því að koma honum á í'ót og að
fyrirhugaður skólastjóri, séra Heimir Steinsson, aflar sér
fræðslu erlendis.
I undirbúningsnefndinni eru Þórarinn Þórarinsson fyrrver-
andi skólastjóri, formaður, séra Guðmundur Óli Ólafsson, séra
Ólafur Skúlason, séra Bemharður Guðmundsson, Pétur Svein-
björnsson umferðarstjóri, Jón R. Hjálmarsson skólastjóri og
Guðrún Halldórsdóttir. Nefndin liélt nýlega blaðamannafund
til að skýra málið og livetja til meiri og almennari framlaga
því til stuðnings. Hún liefur gefið út myndskreytt hvatningar-
bréf og segir þar m. a.:
Samkvæmt umræðum og samþykktum áhugafólks um lýð-
skóla í Skálliolti er honum ætlað að starfa í anda hinnar nor-
rænu lýðháskólahreyfingar og á siðagrunni kristinnar trúar.
Skólanum er ætlað fjórþætt hlutverk, auk valgreina á áhuga-
sviðum og í liagnýtum fræðum:
Að liafa persónideg uppeldisáhrif á nemendur í anda ís-
lenzks þjóðernis og kristinnar trúar, bæði með sambýli og
samstarfi við kennara, þátttöku í kristnilífi liins fornhelga stað-
ar og í námsgreinum, sem settar verða í fyrirrúm á námsskra
skólans, þ. e. bókmenntir, saga, félagsfræði og kristindóinur.
Að mennta og þjálfa starfslið fyrir æskulýðsstarf og söfnuði
landsins.
Að vera vettvangur fyrir fólk, sem að afloknu skyldunánU
eða síðar vildi auka við nám sitt og kynnast nýjum viðhorfuni-
Ennfremur fyrir þá, sem hafa sérstakan áliuga á einhverjuin
vissum greinum.
Að stofna til menningartengsla við þjóðir Norðurlanda og
íslenzka ))jóðarbrotið í Vesturheimi, með því að taka við
nemendum og gangast fyrir námskeiðum með þátttakenduiu
þaðan, þar sem fjallað yrði um íslenzk og samnorræn fræði.
Ennfremur gaf nefndin eftirfarandi upplýsingar:
Sums staðar á Norðurlöndum jafngilda þrjú ár á lýðháskóla