Kirkjuritið - 01.07.1970, Side 50
336
KIRKJUHITIÐ
ERLENDAR FRÉ TTIR
RétttrúnaSar kirkjan hefur ekki stofnað til almenns kirkjuþings síðan
í Nikeu 787. Nú er hafinn undirhúningur slíkrar samkundu í Alexandríu
um áramótin 1972—73. Gera menn sér vonir um að þetta reynist mikil-
vægur stórviðhurður eins og Vatikanþingið II hér um árið, sem Jóhannes
páfi 23. kallaði saman.
Þegar í hyrjun þessarar aldar var því lireyft af patríarkinum í Kons-
tantínópel að kveðja saman allsherjarþing rétttrúnaðarmanna, þótt ekki
lutfi orðið af því fyrr.
Fjórar undirhúningsnefndir eru setztar á rökstóla og gert er ráð fyrir að
ýinis mál varðandi trúfræði, helgisiði og kirkjurétt verði á dagskrá. Einn-
ig þjóðfélagsmál.
Píslarleikirnir heimsfrægu, sem haldnir eru á 10 ára fresti í Olierammer-
gau í Austurríki standa nú yfir. Þeir stafa frá dögum pestarinnar sein
herjaði 1633. Var til þeirra stofnað sem óheits. Nú er mikið rætt um að
lneyta lexta leikjanna. Gera hann sannsögulegri og meira við liæfi nu-
tíðarfólks. Kemst ef til vill í kring 1980. Gífurlegur fjöldi fólks sækir
leikina í ár sem áður. Verða þúsundir frá að hverfa sakir skorts á gisti-
rými og takmörkun áhorfendasvæðisins.
AkveSiS hejur veriS aS taka 40 Englendinga og Walesbúa í dýrlingatölu■
Voru menn þessir uppi á 16. öld er hörð harátta stóð milli kaþólskra og
inótmælenda á Bretlandi, og inargir létu lífið vegna trúarskoðanna sinna.
Erkiliiskuparnir í Kantarahorg, York og Wales hafa gefið út ávarp þat
sem þeir telja, að á þessum tímum, þegar eining kirkjunnar er mjög 11
dagskrá, væri annað þarfara en að rifja upp þessar væringar.
Charles Keating, formaður stjórnskipaðrar rannsóknarnefndar varðandi
klámrita- og klámmyndaútgáfu í Bandaríkjunum, hélt því fram á fundi i
Lundúnum fyrir skömmu, að á ári hverju væri varið ógrynni fjár t'l
þessarar iðju í landi hans. Kvað hann þjóð sína hafa heimsmet ó þessii
sviði. Hann sagði að of miklu fé væri eytt til rannsókna á skaðsemi þess-
arar sölumennsku, því að hún væri fyrir löngu vituð. Ætti að leggj8
meiri áherzlu á löggjöf og aðgerðir í þá áttina að hafa liemil á og draga
úr ósómanum.
KIRKJURITIÐ 36. árg. — 7. hefti — júlí 1970
Tímarit gefið út af Prestafélagi íslands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verð kr. 200 árO'
Ritsjóri: Gunnar Árnason.
Ritnefnd: Bjarni Sigurðsson,
Pétur Sigurgeirsson, Sigurður Kristjánsson.
Afgreiðslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Dvergabakka 3
Sími 17601.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.