Kirkjuritið - 01.06.1971, Side 40
Sr. JÓNAS GÍSLASON:
Fæðingarár Gizurar biskups
Einarssonar
Um fœðingarár Gizurar biskups Ein-
arssonar er ekki vitað með fullri
vissu. Aðal heimild um œsku- og
uppvaxtarár hans er ritgjörð síra
Jóns Gissurarsonar. Þar er fœðingar-
ár hans ekki nefnt, en þess er óbeint
getið. í Biskupasögum síra Jóns
Halldórssonar er einnig getið um
aldur Gizurar, þótt fátt sé þar að
öðru leyti sagt um uppvöxt hans. Af
öðrum heimildum er ekkert hœgt að
segja um aldur Gizurar Einarssonar
nema það eitt, sem byggt er á frá-
sögnum þessara tveggja heimilda.
Ég vil nú gjöra nánari grein fyrir
þessum tveimur heimildum og reyna
að meta sanngildi þeirra.
II.
Síra Jón Gissurarson segir, að
Gizur komi í Skálholt til Ögmundar
biskups sextán vetra og „það vor
kom hann honum í skip á liðnu
sumri, og í skóla í Hamborg". í Ham-
borg er Gizur síðan þrjú ár við nám
samkvœmt sömu heimild. Nú eru til
tvö bréf, sem Gizur ritaði Ögmundi
biskupi frá Hamborg. Annað bréfið
er ódagsett, en hitt er dagsett 15.
marz 1532. Almennt hafa frœðimetif1
hallazt að því, að bréf þessi séu nf'
uð fyrsta vetur Gizurar í Hamboi"ð
og hann hafi því farið utan vori^
1531, 16 vetra að aldri. Eftir því er
hann fœddur 1515. Þessi niðurstað0
er studd á öðrum stað í sömu hein1'
ild. Þar segir að Gizur sé „komir|,1
til Skálholts stiktis stjórnar, þá hanr
var 25 ára að aldri". Ritgjörðin segir
réttilega, að Gizur hafi komið út ári^
1540. Þá bar að sama brunni uf11
fœðingarár hans, 1515.
Augljóst virðist, að aldur Gizurör
í ritgjörð síra Jóns Gissurarsonör
byggist að verulegu leyti á því,
bréf Gizurar til Ögmundar biskup5
sé réttilega ársett 1532 og ritö^
fyrsta vetur hans í Hamborg. Nánör
verður að því vikið síðar.
Eitt atriði í frásögn síra Jarl5
Gissurarsonar kemur undarlega fyr'r
sjónir. Hann segir: „. . . þá hann
(Ögmundur) gjörðist gamall, vö^
hann sjónlaus, tók til að hugsa urT1
sinn vanmátt, en af því að Giz°r
Einarsson hafði atgjörvis hugvit °9
persónulega prýði yfir aðra, sem v°rU
þar uppvaxtarmenn, ritaði biskup
Ögmund bréf til abbadísar Halldóru'
38