Kirkjuritið - 01.06.1971, Side 64
slitið fyrstu barnsskóm. Skólastjóri
skólans er Sigurður Markússon, fag-
ottleikari í Sinfóníuhljómsveit íslands.
A liðnum vetri stunduðu 30 nemend-
ur nóm í skólanum og luku 8 þeirra
lokaprófi, fyrstir allra nemenda skól-
ans. Nómsgreinar, sem skólinn veitir
tilsögn i, eru söngur, sem frú Elísabet
Erlingsdóttir kennir; kirkjutónlistar-
saga, sem dr. Róbert A. Ottósson
kennir,- og söngfrœði og tónlestur,
sem skólastjórinn kennir. Alls hafa
nemendur ótt kost ó 12 stunda
kennslu ó viku. Kennsla hefur farið
fram ó mónudagskvöldum og laug-
ardögum. Hér er því um allmikið
nóm að rœða, og próf eru ströng fró
skólanum.
Söfnuðrnir í Reykjavík reka skól-
ann með nokkrum styrk fró embœtti
söngmólastjóra.
KVÖLDBÆNIR í HÁTEIGSKIRKJU
Kvöldbœnir verða í Hóteigskirkju i
sumar ó hverjum virkum degi klukk-
an 18,30 að sama hœtti og verið hef-
ur undan farin sumur.
NÝIR STARFSMENN
Séra Lórus Halldórsson hefur verið
skipaður sjúkrahúsaprestur fró 1. júm
að telja. Er það fagnaðarefni, að
hann skuli nú aftur tekinn við prests-
embœtti í islenzkri kirkju. Þó hefur
Guðmundur Einarsson verið róðinn
aðstoðarœskulýðsfulltrúi til þriggja
óra. Guðmundur lauk prófi fró Kenn-
araskóla íslands ó liðnu vori. Hann
hefur starfað mjög í KFUM og Kristi-
legum skólasamtökum í Reykjavík-
Ennfremur hefur hann stjórnað sunnu-
dagaskóla kirkjunnar ó Selfossi und-
anfarna vetur. Hann er sonarsonur
séra Magnúsar Guðmundssonar,
sjúkrahússprests. Þó hefur séra Jón
Bjarman, er óður var œskulýðsfulltrúi
kirkjunnar, verið róðinn fangelsis-
prestur. Er þetta nýtt embcetti og hið
þarfasta. Vér biðjum öllum þessum
nýju starfsmönnum allrar blessunar 1
sta rfi.
SAMSTÆÐUR?
— þótt eg hefði svo takmarkalausa trú að
fcera mœtti fjöll úr stað, en hefði ekki kœrleika,
vœri eg ekki neitt.
— Kœrleikurinn er langlyndur, hann er góð-
viljaður; kcerleikurinn öfundar ekki. kœrleik-
urinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki
upp,--------
PÁLL POSTULI: I. KOR. 13:2 OG 4.
Gœti verið að kirkjan þyrfti að rifja upp fró-
sögnina um Múhamed, sem taldi sjólfsagt að
fara til fjallsins, þegar fjallið vildi ekki koma
til hans.
Eitt er víst það þarf meira en að breyta
messutóni í grallaragaul eða fella það niður
og útbúa lesmessur, svo að eitthvað sé nefnt,
sem reynt hefir verið hér úti við norðurskauts-
bauginn.
SR. ÁRELÍUS NlELSSON,- TÍMINN 23. maí 1971
62