Kirkjuritið - 01.12.1975, Blaðsíða 5
I GATTUM
Nokkrar umræður hafa orðið að undanförnu um stefnu Kirkju-
rits, einkum meðal presta, og sýnist líklega sitt hverjum. Það
er fagnaðarefni, því að rit um kirkjumál, er öllum væri að skapi,
Qseti naumast verið mikils vert. Annars er stefna rits einungis
stefna þeirra, er rita í það. Ritstjóri og ábyrgðarmaður hefur þó
að jafnaði aðstöðu til þess öðrum fremur að hafa nokkur áhrif
á, hvert efni birtist í riti. Ekkert launungamál er það, að undirrit-
aður vissi vel, hvað honum lá helzt á hjarta, er hann hóf starf
v'ð Kirkjurit. Skal þar fyrst nefna kristniboð, er lítt eða varla hafði
verið sinnt í ritinu áður. Hið sama má segja um annað það
kristið starf, sem leikmenn hafa einkum unnið hér á landi. Það
var og er sannfæring hans, að kirkjurit, sem einkum fjalli um
Presta, predikun þeirra og starf, sé óæskilegt nema það sé þá
^stlað prestum einum. Að öðrum kosti hlýtur það að standa
kristnilífi fyrir þrifum. Það var og von, að ritið gæti í ríkara mæli
tlutt prestum og öðrum áhugamönnum vandaðar og áhugaverð-
er guðfræðibókmenntir jafnframt því, að þar yrði bókaspjall af
°ðru tagi. Þar eru vonbrigðin mest. Raunin er sú, að slíku verður
ekki sinnt að neinu gagni án nokkurra fjármuna. Og þeir eru
engir í handraða.
Efst og fremst var þó sú bæn í huga að þjóna mætti orði Jesú
Krists, fagnaðarerindi Biblíunnar, af trúmennsku. Guð og menn
eru beðnir að virða til vorkunnar það, sem miður hefur tekizt.
^ý ritnefnd, kosin af stjórn Prestafélags islands, tekur til starfa
rneð fyrsta hefti ársins 1976. Þeim, er nú hverfa úr ritnefnd, er
Þskkað það, er þeir lögðu af mörkum, og beðið blessunar. Og
Þó er ritstjóri í mestri þakkarskuld við þann, er áfram situr, síra
Arngrím Jónsson. Hinir séu og velkomnir til starfa, sem nýir eru.
^erði Guð með þeim í verki. G. Ól. Ól.
243