Kirkjuritið - 01.12.1975, Blaðsíða 36
stúdentar. Við fórum þangað þrjú, við
hjónin og Sigríður Pétursdóttir. Þar
mættum við þeirri hlýju, þeim skilningi
og áhuga, sem vakti undrun okkar.
Forgöngumenn mótsins vildu allt fyrir
okkur gera, vita allt um ísland og
kristilegt stúdentastarf á islandi. Ég
átt þá, því miður, dálítið erfitt með að
segja frá því starfi, því að ég var þá
nýliði í Kristilegu stúdentafélagi, en
þeir urðu þá þeim mun áhugasamari
um að veita eitthvert lið og buðu okkur
á fund norrænu samstarfsnefndarinn-
ar. Þaðan opnuðust svo leiðir til ým-
issa átta, bæði með kynnum við ein-
staklinga og með öðru móti.
Upp af þessu spratt það, að stofnað
var til biblíuleshóps meðal háskóla-
stúdenta þá um haustið, og eins var
farið að hafa opið hús fyrir stúdenta
á heimilum félagsmanna. Jafnframt
var svo efnt til kristilegra stúdenta-
móta, en þau höfðu raunar verið hald-
in öðru hverju áður. Fyrirlestrar voru
einnig haldnir fyrir stúdenta á vegum
félagsins. Þannig tók starfið smám
saman að aukast, og þá fjölgaði þeim
einnig, sem sýndu á því áhuga. Það er
mér sérstök ánægja að sjá, hversu
margir stúdentar sinna þessu starfi.
Og ég er sannfærður um, að Kristilegt
stúdentafélag er verkfæri, sem Guð
vill nota, ef okkur skortir ekki fúsleik-
ann.
Frá árinu 1972 höfum við átt fastan
fulltrúa í norrænu samstarfsnefndinni
og þar með verið aðilar að því starfi,
sem þar af leiddi. Því vaknaði sú
spurning þegar fyrir þrem árum, hvort
unnt mundi að bjóða ti! norræns stúd-
entamóts á íslandi. Hún var ákaflega
fjarlæg og ævintýraleg í fyrstu, en varð
smám saman áleitnari, þangað til
ákveðið var að lokum að láta til skarar
skríða. Þess vegna hefur undirbúning-
ur mótsins í sumar eiginlega staðið
lengur en undirbúningur annarra móta.
Þar er þá einnig nokkur skýring þess,
hve vel gekk. Enda sést vel, þegar
litið er til baka, hvernig Guð hefur
borið okkur yfir erfiðleika og vanda-
mál. Það er stórkostlegt í augum okk-
ar, sem höfum reynt það. Því má ekki
heldur gleyma, að við vorum umvafin
bænum, á meðan mótið stóð. Beðið
var fyrir mótinu um allan heim, því
að við erum í alheims samtökum, sem
kallast International Fellowship of Ev-
angelical Students. Þau samtök dreifa
bænaskrám um allan heim, og þar eru
talin upp ýmis bænarefni, svo sem
þetta mót.
Við sendum einnig fulltrúa á aðal-
fund þeirra samtaka. í sumar var hann
haldinn í Austurríki, og þangað fór
síra Jónas Gíslason.
Guð leysti húsnæðisvanda
— Þú talar um, að Guð hafi borið
ykkur yfir erfiðleika og vandamál. Get-
ið þið nefnt eitthvert dæmi slíks?
— Já, þá kemur einna fyrst í hug-
ann sú stund, þegar við fengum Þær
fréttir, að þátttakendur væru orðnir
þúsund. Við vissum ekki, hvernig við
áttum að leysa þann vanda. Við höfð-
um alltaf gert ráð fyrir um sex hundr-
uðum og þóttumst reikna ríflega. En nu
voru sem sagt öll húsakynni orðin of
lítil, og þó var stærsta spurningin su,
hvar unnt mundi að safna öllu þessu
274