Kirkjuritið - 01.12.1975, Blaðsíða 67
ÞÁTTUR UM GUÐFRÆÐI
ARTICULI CHRISTIANAE DOCTRINAE
Þjónusta fangelsispresta
eftir Karl Rahner, S. J.
Um höfundinn
Karl Rahner, höfundur þessarar grein-
ar- er einn kunnasti guðfræðingur nú-
timans. Hann er fæddur árið 1904 í
Freiburg im Breisgau. 1922 gekk hann
' reglu Jesúfélaga (Societas Jesu) og
Haut prestvígslu árið 1932. Hann fékk
menntun sína hjá Jesúítum, en nam
einnig heimspeki hjá Heidegger, þeim
fr*ga existentialista, árin 1934—36.
Lektor varð hann í trúfræði við Háskól-
ann í Innsbruck 1937, en gegndi
Prestsverkum í Vín og Bayern á veldis-
fima nazista. Frá 1949 var hann trú-
fræðiprófessor í Innsbruck, þar til
hann var skipaður prófessor í kristinni
fleimsskoðun og trúarbragðaheimspeki
við Háskólann í Múnchen (1964). Þeg-
ar il- Vatíkanþingið var kallað saman,
Var Rahner tilkvaddur sem guðfræði-
e9nr ráðgjafi þess. Hann var og með-
'mur í guðfræðinefnd páfastóls.
^arl Rahner er kunnastur fyrir rit-
störf sín og hefur ritað mikinn fjölda
bóka. Merkastar þeirra eru Geist im
Welt, Hörer des Wortes, Schriften zur
Theologie (sem í ensku þýðingunni
heitir Theological Investigations, en út
eru komin ekki færri en 12 bindi),
Sendung und Gnade /-/// (á ensku
Mission and Grace) og Gnade als
Freiheit.
Greinin um þjónustu fangapresta
er þýdd úr III. bindi „Mission and
Grace“, en var upphaflega fyrirlestur,
305