Kirkjuritið - 01.12.1975, Side 62

Kirkjuritið - 01.12.1975, Side 62
Hrefna Tynes annaðist leiðbeiningar varðandi barnastarf. Tók það mestan tíma mótsins eða námskeiðisins. Að- alefnikennslu þessarar var eftirfarandi: 1. Inngangur. (Var þá lögð áherzla á nokkrar spurningar: Hvað er sunnu- dagaskólastarf? í hverju er það fólgið? Hvers vegna hjálpa ég? Hvert vil ég leiða börnin? Hvaðan fæ ég hjálp? Hver er þá aðalleiðtoginn? Áherzla var lögð á, að við eigum að vera verkfæri í hendi Guðs. 2. Söngur — aðallega hreyfisöngvar og val söngva. 3. Sögur — a) Biblíusögur með loð- myndum, b) barnasögur úr daglega lífinu. 4. Loðmyndir — notkun þeirra, leiðbeiningar um gerð loðmynda- taflna. 5. Helgileikir — Guðs orð, Vorið, Jólanótt. Fjallað var um þessi fimm atriði og æfðir þrír helgileikir. Síðan var skipt í þrjá vinnuhópa. Árangur varð sá, að eftir æfingu hjá hópunum, sýndu tveir hópar helgileiki. Á föstudagskvöldið var kynningar- kvöldvaka, sem Pétur Þórarinsson stjórnaði. Á laugardagskvöldið var kvöldvaka, sem nemendur önnuðust, en Pétur stjórnaði. Á þeirri kvöldvöku sýndu og sögðu tvær stúlkur frá Akur- eyri söguna ,,Jesús blessar börnin.“ Tvær stúlkur frá Siglufirði sýndu og sögðu söguna af Zakkeusi með til- heyrandi hreyfisöng. Helgileikurinn ,,Guðs orð“ var fluttur sem lokaþáttur undir stjórn Ernu Þórarinsdóttur frá Akureyri. Allt tókst þetta mjög vel. Þátttakendur voru áhugasamir og unnu vel. Á sunnudagsmorgninum var Bibl- íulestur, sem Pétur sá um og leið- beindi með. Hann hafði einnig smá- stund leiðbeiningar í málfundastörf- um og tjáningu. Upphaflega var öllum þátttakendum skipt í tvennt, þar sem þeir voru svo margir. Námskeiðinu lauk með guðsþjónustu í Munkaþver- árkirkju. Séra Jón Aðalsteinn Bald- vinsson prédikaði. Organisti var Jón Helgi Þórarinsson og sá hann og ungl- ingarnir um allan söng. Fyrir altaris- göngu fluttu þeir kristilegt trúarljóð með gitarundirleik. Var það nokkur nýlunda, sem fólki virtist falla vel í geð. í lok guðsþjónustunnar sleit sr. Bolli Gústavsson form. ÆSK nám- skeiðinu. Aldarafmæli Keldnakirkju Sunnudaginn 27. júlí síðastliðinn var minnst aldarafmælis Keldnakirkju á Rangárvöllum með hátíðarguðsþjón- ustu í kirkjunni. Var guðsþjónusta þessi mjög fjölsótt, m. a. af eldri brott- fluttum Rangvellingum, og sóttu hana töluvert á annað hundrað manns. Að hátíðarmessunni lokinni flutti Þór Magnússon, þjóðminjavörður ávarp, en síðan var, að tilhlutan sóknarnefnd- ar Keldnasóknar og safnaðar, kirkju- gestum boðið til kaffidrykkju í Hellu- bíói. Þar flutti Árni Böðvarsson cand. mag. þakkarorð af hálfu gesta. í afmælisprédikuninni var þess minnst, að núverandi Keldnakirkja er arftaki kirkna á þeim stað, allt frá tíð Jóns Loftssonar, en talið er, að hann hafi fyrstur látið reisa kirkju að Keld- um, nálægt lokum 12. aldar. Guðmundur Brynjólfsson bóndi að Keldum átti frumkvæði að og sá um 300

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.