Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 37
fólki í einn sal. Eina húsið, sem um
var að ræða, var Laugardalshöllin.
Þangað skunduðum við náttúrlega hálf-
óstrykum fótum og spurðum, hvort
hún væri föl. Það var stuttur tími til
stefnu. En þá fengum við það svar,
aö húsið væri laust þá daga, sem um
var að ræða.
— Var húsið laust nákvæmlega
mótsdagana?
— Já, mótið hefði ekki mátt standa
óegi lengur en ráð var fyrir gert, því að
við þurftum að rýma salinn í síðasta
•agi aðfaranótt 13. ágúst. Hins vegar
gátum við fengið húsið til umráða viku
fyrir mót, svo að unnt var að hefja
nauðsynlegan undirbúning þar í tæka
fíð. Þannig var eins og allar gáttir
opnuðust, en áður hafði ýmislegt
gengis heldur treglega og þunglega.
Sitthvað fleira mætti nefna. Þar er
f- d. fjárhagurinn. Það má heita furðu-
legt, að endar skyldu nást saman þrátt
fyrir hækkanir og margs konar óvissu.
^ið urðum að ákveða mótsgjald fyrir
aramót. Á þeim tíma gat enginn gert
ákveðin verðtilboð. Við urðum að
byggja á líkum og vonum. En það fór
a|lt betur en á horfðist stundum.
Gísli tekur undir þetta, segir ótal
srnávandamál hafa skotið upp kollin-
Urr>, en síðan horfið eða gufað upp,
áður en nokkur hafði áttað sig á með
hverjum hætti það varð. Hann segir,
Þar hafi handleiðslan verið auð-
fundin.
Eiginlega vorum við alltaf að
^'ða eftir þeim vandamálum, sem ekki
yr®i stigiS yfir, segir síra Jón, —
kfnggumst við, að þau kæmu, þegar
nær drægi. Við þurftum t. d. að láta
prenta margt, flytja ósköp, þar á með-
al tvær þúsundir stóla, en allt tókst
og hafðist, jafnvel fyrr en við höfðum
búizt við.
Ferðalög og framtíð
Þessu næst er tali vikið að ferðalög-
um stúdenta um landið. Einkum er þó
rætt um þá hópa, sem ferðuðust til
þess eins að boða fagnaðarerindið.
Þeir vöktu mikla athygli þar, sem þeir
fóru, en þeir héldu samkomur í Kefla-
vík, á Akranesi, í Stykkishólmi og á
Akureyri. Þar að auki fór svo einn
hópur austur fyrir fjall og kom víða
við, í Hveragerði, á Selfossi, á Eyrar-
bakka og hér í Skálholti. Sá hópur
hitti margt fólk á ferð sinni. Hinir
hóparnir voru nokkuð um kyrrt hver
á sínum stað og stofnuðu til nokkru
nánari kynna.
Síra Arngrímur spyr, hvort þeim hafi
orðið meira ágengt á einum stað en
öðrum. Síra Jón heldur, að samkom-
ur hafi verið fjölmennastar í Keflavík.
Þar var full kirkja, þegar samkomur
voru haldnar. Hann segir, að viðtökur
hafi einnig verið mjög góðar í Stykk-
ishólmi og rómar þátttöku prestsins í
samkomuhöldum þar. Hann kveðst
halda, að samkomur, sem haldnar hafi
verið í Akureyrarkirkju, hafi naumast
verið nógu vel auglýstar. Hins vegar
segir hann, að stúdentarnir hafi þar
gert nokkuð af því að taka fólk tali
á götum úti og bjóða því á samkomur.
Segir hann, að þeim hafi þótt mjög
gott að ræða þannig við islendinga,
þeir hafi reynzt fúsir til að spjalla og
einkum tekið stúdentunum vel, er þeir
275
L