Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 59
kom út. Segja má, að nú sé til
hjá Æskulýðsstarfinu gott efni fyrir
barnasstarfið. Skiptir þar mestu að
byggt var á því, sem fyrir var, en auk
Þess koma bæklingarnir og Sunnu-
dagspósturinn og skírnarkveðjan. Þá
er verið að endurþæta filmuræmu-
safnið og s. I. ár var sérstök áherzla
lögð á notkun loðmynda. Hefur nú svo
gleðilega brugðið við, að þessi notkun
sem lítil var eða engin, er nú öll að
lifna við.
1 þessu samþandi er vert að geta
Þess, að nú er fremur auðvelt að
halda námskeið fyrir þá, er eitthvað
vilja nema fyrir sunnudagaskólastarf,
þar sem fyrir liggur gott efni á ís-
lenzku, er byggja má á. Var eitt slikt
námskeið haldið nú fyrir skömmu með
ÆSK og verður síðar getið um það
sérstaklega. í útgáfumálunum er þó
enn margt óunnið. nýrra bæklinga um
svipað efni og efni þeirra bæklinga
^jögurra, er Æskulýðsstarfið hefur gef-
út, er þörf á 3—4 ára fresti. Þá er
bþ/n nauðsyn á útgáfu efnis fyrir
nnglingastarfið, eins og áður segir og
Verða einhverjar úrbætur gerðar á því
'nnan tíðar. En einnig þau verkefni
fyrir unglinga, sem talin hafa verið
UPP og í undirbúningi eru, eru verk-
efni, sem stöðugt þarf að vinna að.
Heilög skírn kveðja frá kirkjunni — er
a®eins 1. hluti útgáfuþáttar, er mið-
ast við skírn, fermingu og hjónavígslu.
^érstaka kveðju vantar því fyrir ferm-
'ngarbörn og nývígð hjón. Þá er
sjálfsagt, að í sama þætti sé reiknað
með kveðju kirkjunnar til guðfeðgina
Skírnþegans og til skírnþegans sjálfs
a 1- árs skírnarafmæli hans og allt
upp í 6. árs skírnarafmælis. í Ijós kom
áhugi hjá nokkrum prestum á þessum
skírnarafmæliskveðjum í umræðum á
s. I. prestastefnu, er rætt var um hús-
vitjanir. Var þá á það bent, að slíkar
skírnarafmæliskveðjur gæfu prestin-
umum kærkomið tækifæri til að heim-
sækja sóknarbörn sín og hafa nokkurt
erindi. Var þessi umræða meðal presta
af stór-Reykjavíkursvæðinu.
Fleiri þætti má nefna, svo sem heim-
ilisguðræknina, helgistundaform fyrir
skóla, leiðarvísi um kristið uppeldi í
heimahúsum og í söfnuðinum o. s. frv.
o. s. frv., en hér skal aðeins nefna
einn þátt í viðbót, er taka þarf afstöðu
til á þessum vetri og helzt þurfa hjólin
að vera farin að snúazt fyrir áramót.
Hér er átt við útgáfu nýrrar fermingar-
bókar. Kristin trúfræði er brátt uppseld
og verður þá að vera Ijóst, hvort hana
skal endurprenta eða leita nýrrar bók-
ar. Með hverju árinu, sem líður, er
minna selt af Kristinni trúfræði. Ekki
þó af því, að þá bók noti stöðugt færri
og færri heldur af hinu, að bókin er
orðin víða til og gengur sama bókin
milli systkina og vina. Kristin trúfræði
þarf að vera til, svo að þeir prestar,
er vilja, geti notað hana og kennt.
Hinu er ekki að leyna, að bókin mun
afar erfið í kennslu þar sem mörg
spurningarbörn eru. Fyrir því virðist
nú í vetur síðustu forvöð að þýða og
láta prenta nýja bók, sem hentugri er
til kennslu í mörgum prestaköllum og
um leið sé tryggt, að hún verði notuð
í nokkuð stóru upplagi þegar næsta
haust. Með þessu verður einnig tryggt,
með kveðju kirkjunnar til guðfeðgina
að bókin „Kristin trúfræði" verður til
297