Ljós og skuggar - 01.01.1904, Blaðsíða 18
18
konunnar. Svipurinn var orðinn hörkulegur,
ennið hrukkótt, og það var beyskja í rónmurn.
Bakkus var búinn að svipta hana öllu yndi. Hún
sá manninn sinn berast hraðfluga niður á við,
hún sá börnin sín hýma svöng 1 kringum sig —
og hún gat ekkert. við gjört. Maðurinn hafði
öll peningaráðin, og fulit leyfi til að nota þá ept-
ir vild, hún varð að Jíða með þögn og þolin-
mæði. Orð hennar höfðu svo opt kostað högg
og heitingar, hún var fyrir löngu uppgefin; búin
að leggja árar í bát.
Slík eru kjör mæðra, eiginkvenna og barna
drykkjumannsins!
IV.
Ljettúð þar sem sízt sltyldi.
Það átti að halda útbreiðslufund í G.-T. fje-
laginu. Jón hafði fengið aðgöngumiða á fund
þennan, sem fleiri góðir menn, og þegar fundur-
inn byrjaði, var fundarhúsið alskipað fólki.
í fundarbyrjun voru gestirnir boðnir vel-
komnir. Síðan gekk fram roskinn maður, skarp-
legurogaivarlegurásvip, og mælti nökkrum orðum
til samkomunnar. Hann sagði meðal annars:
„Tilgangur þessa fundar og allra svipaðra funda,
sem hjer eru haldnir, er sá, að reyna að vekja
áhuga og umhugsun á hinu þýðingarmikla vel-
ferðarmáli þjóðanna — bindindismálinu. Það
dirfist enginn að neita því, að það er velferðar-