Ljós og skuggar - 01.01.1904, Side 26
26
])oim sagt að fundur yrði settur. Gekk þá fram
maður einn aivarlegur á svip og einbeittur og
mælti: „Það hefur jafnan verið venja vor að
byrja fundi vora með bæn til drottins, vjer vilj-
um því biðja.“
„Hvern a...... eigum við að gjöra með
bæn? Er þetta ekki fundur, eða er það máske
guðsþjónusta? Nei, nei, enga bæn, enga bæn.“
Þessi orð og fleiri svipuð kváðu við frá einstaka
mönnum, en aðrir byrjuðu að skella lófum og
stappa fótum. — Frá brjósti nokkurra stigu
upp bænir til drottins allsherjar' um að hegna
eigi þessum vesalingum, sem blindir af hatri og
ofsa fóru lastyrðum um hið helgasta.
„Hvaða samkoma er þetta?“ spurði Jón
pilt einn, er stóð nálægt honum.
„Veiztu það ekki? Við ætlum að fara að
skipta um prest.“
„Einmitt það. Hvað þykir ykkur að prest-
inum?“
„Hvernig spyrðu maður! Veiztu ekki að
söfnuðurinn er sáróánægður með hann?“
„Af hvaða ástæðu?"
„En ,út af kenningunum hans. Heldurðu
að við þolum nokkrum manni þau orð, sem hann
hefur talað við okkur?“
„Eins og til dæmis?“
„Það er hart að hlusta á annað eins og það,
að enginn komist í guðs ríki nema hann endur-
fæðist, Jog segi fyrir mig, jeg veit ekki til, að