Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 18
48 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Já, það er von að þu spyrjir: hvers vegna,« svaraði hún háðslega. »Og fyrst að jeg er nú svona gerð eins og jeg er, hvers vegna þurfti jeg þá endilega að fæðast sem greifa- dóttir? Hefði jeg verið einhver götustelpa, þá hefði jeg verið á minni rjettu hiliu — menn hefðu skrifað um mig skáldsögur og Ieik- rit. Jeg hefði getað orðið söguhetja og feng- ið alla góða menn til að gráta gleðitárum yíir því, hvað jeg væri fús til að svala fýsnum þeirra og örva þær. En nú er jeg greifadóttir og gift miljónara með kurt og prýði og það eru mistök náltúrunnar. Náttúrunni mistekst stundum, Geoffrey, og þegar það kemur fyrir, þá er venjulega ekki hægt að ráða neina bót á því.« Við vorum nú komin heim til okkar og gekk jeg við hlið konu minnar, dapur í bragði. »Sibyl!« sagði jeg að lokum. »Jeg var að vona, að þið Mavis Clare munduð verða vin- konur.« »Jeg býst við, að við verðum það — um stundarsakir að minsta kosti.« svaraði hún og hló við. »En dúfan fer ógjarna á fund hrafns- ins og lífemishætti Mavis Clare og rilstarfsemi hennar leiðast mjer afskaplega. Auk þess er hún, eins og jeg áður sagði, alt oí hyggin og skarpsýn kona til þess að sjá mig ekki út í hendingskasti. En jeg ætla að leika mitt hlut- verk svo lengi sem jeg get. Hún getur auð- vitað ekki tjónkað við mig stundinni lengur, ef jeg sýni henni rembilæti og hlutverk mitt verður miklu erfiðara en það — það að látast vera heiðarleg kona.« Hún hló aftur þennan kuldahlátur, svo að hrollur fór um mig. Hún gekk hægt inn í salinn um opnar glerhurðirnar, en jeg stóð einn eftir úti í garðinum meðal rósa og trjá- runna. Jeg fann, að þetta prýðisfagra Wdlows- mere var alt í einu orðið ljótt og gersneytt öllum sínum unaðsþokka. Nú var það ekki orðið annað en diaugabæli — ofurselt hinum alsigrandi og aldrotnandi anda djöfulsins. XXVIII. Pað er fátt, sem snertir mannlífið eins und- arlega og óvæntir viðburðir, sem gera það að engu á einum degi eða jafnvel á einni klukku- stundu, sem áður dafnaði í kyrð og næði og vaida óbætaniegu tjóni, þar sem öllu virtist vera óhætt. Ressir viðburðir umturna eins og jarðskjálfti, allri vanalegri rás hverdagslífsins, gera vonir okkar að engu, sundurkremja hjörtu okkar og breyta gleði okkar í örvæntingu. Vanalega ber þá að höndum, þegar okkur virð- ist líða sem best, án alls fyrirvara og með hinum skyndilega ofsa hvirfilbylsins í eyðimörk- inni. Reir lýsa sjer á þann hátt, að einhver meðlimur þjóðfjelagsins, sem vanalega hefir hreykt sjer hátt, litið smáum augum á aðra og verið álitinn fyrirmynd að dygðum og mann- kostum, lendir alt í einu í sorphaugnum. Við sjáum líka dæmi þess í lífi konunga og ann- ara stórmenna. Einn daginn leikur þeim alt í lyndi og hinn daginn »falla þeir í ónáð«. Gagngerðar breytingar verða með svo miklum hraða, að ekki þarf að kippa sjer upp við það, þó að það heyrist, að trúflokkar, sem virðast vera í óvenju góðu gengi, klæðist í skyndi í sekk og ösku og hrópí hástöfum: »Herra! herra! Bú oss undir hina illu daga, sem nú eru í vændum!« Meðalhóf stóísku spekinganna var vissulega hyggilegt. Reir töldu það synd- samlegt að gleðjast eða hryggjast, þeir reyndu að gæta meðalhófs í sorg og gleði og þorðu ekki að sleppa sjer í algleyming gleði og sorgar. Mjer leið mjög illa hið innra með sjálfum mjer, en hið ytra gladdist jeg við gæði þessa lífs og allar þær allsnægtir, sem jeg gat veitt mjer. Jeg fór að sætta mig við þessi verald- argæði og reýndi að bæla niður áhyggjur mínar með þeim og gera sem minst úr þeim. Mjer hepnaðist þetta að því leyti, að jeg varð með hverjum deginum æ meiri efnishyggjumaður og svo sólginn í líkamlegar nautnir, góðan mat, dýrindis vín og allskonar nautnir, að jeg misti smám saman allan áhuga á andlegri starf- semi. Auk þess vandist jeg næstum ósjálfrátt á umburðarlyndi og afskiftaleysi um það, sem

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.