Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 22
52 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Berið hinni fögru konu yðar, frú Sibyl, mfna Iotningarfylstu kveðju, Með kærum kveðjum: Yðar, meðan þjer viljið Lúcíó Rímanez. Jeg hló að þessu brjefi og sýudi konu minni það, en hun hló ekki að því. Hún las það með svo mikilli athygli, að mig undraði stórlega og var hún eitthvað raunaleg á svip- inn, þegar hún braut það saman aftur. »En hvað hann lítilsvirðir okkur öll!« sagði hún. »Og háðið í þessu brjefi. Hefirðu ekki tekið eftir því?« »Hann hefir jafnan verið kaldhæðinn,« svar- aði jeg »og jeg hefi aldrei búist við, að hann breyttist neitt með það,« »Hann virðist þekkja eitthvað til kvenfólks- ins, sem hingað kemur,« sagði hún hugsandi. »Það er eins og hann sjá gegnum holt og hæðir og viti þess leyndustu hugsanir.« Hún hleypti brúnum og virtist niðursokkin í hugsanir sínar. En jeg hætti þessu samtali, enda var jeg annars hugar og sinti ekki um annað en- að undirbúa komu prinsins. Og þar kom að, að konungsfólkið kom, eða hinir mikilhæfustu menn þess, tóku þátt í öll- um þeim skemtunum, sem þeim voru búnar og fóru svo aftur um leið og þeir þökkuðu fyrir viðtökurnar með vanalegum kurteisisorð- um, en prinsins mintumst við jafnan hlýlega eins og flestir aðrir. Allir gestirnir fóru burt um sama leyti og hann, svo að við hjónin urðum ein eftir og lagðist þá einhver þögn og auðn yfir heimilið — eitthvað, sem virtist vita á ilt. Sibyl sýndist finna jafnmikið til þess og jeg, og sá jeg að þetta lagðist þungt á hana, enda þótt við hefðum ekki orð á því okkar á milli. Hún fór nú oftar en áður yfir að »LiIjustöðum« og virtist mjer hún alt af hressari í anda, þegar hún kom þaðan aftur. Röddin var þýðari og augnatillitið blíðlegra. Eitt kvöldið sagði hún: »Jeg hefi verið að hugsa um það, Geffrey, að ef til vill sje þó eitthvað gott til í lífinu, ef jeg aðeins gæti fundið það og hagnýtt mjer það. En þú ert síst af öllum fallinn til þess, að leiðbeina mjer með það.« Jeg sat í hægindastól úti við gluggann og var að reylqa. Sneri jeg mjer nú að henni, bæði hissa og gramur. »Við hvað áttu, Síbyl? Rú veist þó líklega, að það er mín rnesta ánægja að ætla þjer alt gott, en mjer finnast ýmsar hugmyndir þínar vera afskaplega andstyggilegar.« »Nei, hæltu nú,« sagði hún með leiftrandi augum. »Rjer finnast hugmyndir mínar and- styggilegar, að þú segir? En hefur þú sem eiginmaður minn, reynt nokkuð tii þess að bæta þær? Hefir þú ekki sömu ástríðurnar sem jeg? Og ert þú ekki jafnánauðugur þeim? Hvað hefi jeg sjeö til þín dag eftir dag, sem jeg ætti að taka mjer til eftirbreyíni? Pú ert húsbóndi hjerna og þú drotnar yfir öllu með þeim hroka, setn auðæfunum er samfara — þú borðar, drekkur og sefur, og þú býður kunningjum þínum til þín, bara til þess að að geta miklast af öllu prjálinu og ríkilætinu. Pú lest og reykir, ferð á dýraveiðar og skemti- reiðar, og þar með er alt sagt. Þú ert ósköp tilkomulaus maður. Ert þú kannske að grensl- ast nokkuð eftir því, hvað að mjer gangi? Reynir þú kannske með umburðarlyndi kær- leikans að benda mjer á göfugra markmið en það, sem fyrir mjer vakir, sjálfrátt eða ósjálf- rátt? Reynir þú að vísa mjer, breyskri, geð- ríkri villuráfandi konu, veginn til þess, sem jeg held að sje Ijósið — Ijós trúarinnar og vonarinnar — þess eina staðar, þar sem frið er að finna.« Hún huldi andlitið í sessunni og skalf af ekka. Jeg tók vindilinn úr munninum og starði ráðþrota á hana. Þetta var hlýlt og blítt haust- kvöld, eitthvað klukkutíma eftir miðdegismatinn. Jeg hafði borðað og drukkið vel og var nú hálfdrungalegur á eítir. »Mjer finst þetta ógnar vitleysa í þjer, góða mín,« sagði jeg. »Jeg held, að þú sjert móð- ursjúk. —«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.