Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 21
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 51 Við vorum alt af að óska þess, að Rímanez kæmi og vonast eftir honum, en hann kom nú ekki samt sem áður. Hann símaði til okk- ar frá París og Ijet fylgja skeytinu svohljóðandi brjef: Kæri Tempest! Pað er mjög svo alúðlegt af yður, að vilja fá mig, yðar gamla vin, meðal gesla þeirra, sem þjer hafið boðið til yðar ásamt Hans konunglegu tign og jeg vona, að þjer misvirðið það ekki við mig, að jeg kem ekki. Jeg er orðinn dauðþreyítur á þessu konung- borna fólki og jeg hefi umgengist svo margt af því á lífsleiðinni, að mjer er farin að leið- ast sú umgengni. Aðsfaða þess er nákvæm- lega sú sama og hún alt af hefir verið, alt frá dögum Salomons og fram á stjónarár Viktoríu drotningar. En mennirnir þrá tilbreytingu — eða það geri jeg að minsta kostí. Sá eini einvaldsherra, sem mjer hefir nokkuð þótt til koma, var Ríkharður Ijónshjarta. Pað var eitthvað einkenniiegt og frumlegt við hann og jeg býst við, að það hafi verið fremur gaman að tala við hann. Karl mikli var víst ekki heldur sem »al!ra verstur.* En hinir! — Ojæja! Margt hefir verið skraf- að og skráð um Elísabetu drotningu. Hún var kona þrálynd, ósveigjanleg og blóðþyrst. Frægastur maður á hennar tímum var Shake- speare, en huga hans voru kouungar og drotningar ekki annað en leikbrúður. Og að þessu leyti líkist jeg honum en heldur ekki að öðru. Pjer fáið nóg um að hugsa að skemta þessum tignu gestum yðar, því að jeg býst við, að sú skemlun sje ekki til, sem þeir hafa ekki reynt og eru orðnir meira og minna leiðir á og mjer þykir leitt, að geta ekki bent yður á neitt nýtt. Hennar náð, hertogafrú Rapidryder, þykir ósköp gaman að láta fleygja sjer upp í háa loft og hlunkast niður aftur á sterkan dúk, sem hald- ið er af fjórum fílelfdum aðalsmönnum, á kvöldin, áður en hún fer að hátta. — Hún getur ekki rjett vel sýnt s'g á leikhúsi sök- um tignar sinnar og er þá þetta einkar sak- laust og vel til fallið ráð til að sýna á sjer fæturna, en henni finst með rjettu, að þeir sjeu alt of fallegir til þess að enginn fái að sjá þá. Frú Bouncer, sem jeg sje af iistan- um, að er ein meðal gesta yðar, hefir gam- an af spilum. Jeg skyldi hjálpa henni til þess, ef jeg væri í yðar sporum. Ef hún getur unnið svo mikið í spilum á Willows- mere, að hún gæti borgað skraddarareikning- inn sinn, þá mun hún ávait minnast yðar með þakklæti og verða yður gagnlegur vinur eftirleiðis. Hin hávelborna ungfrú Fitz Gand- er, alkunn af dygðum sínum, þráir mjög að giftast Noddles lávarði. Ef þjer getið nú .komið því til leiðar, að hún trúlofist áður en móðir hennar kemur aftur frá Skotlandi, þá gerið þjer henni stórgreiða og firrið sam- kvæmislífið hneyksli. Til skemtunar karl- mönnunum ráðlegg jeg dýraveiðar, spil og ótakmarkaða tóbaksnautn. Pjer þurfið ekki að hafa mikla fyrirhöfn fyrir prinsinum. Hann skemtir sjer sjálfur með því að athuga hjegómaskap og heimskupör fjelaga sinna. Hann er skarpsýnn maður og hlýtur að læra hitt og þeíta með því að athuga án afláts menn og málefni og það ætti jafnvel að gera hann hæfan til þess, að setjast í há- sæti Englands. Jeg segi »jafnvel«, því að nú sem sleodur er það veglegasta hásæti ver- aldarinnar og verður það, þangað til stunda- glasi heimsins verður snúið við. Prinsinn skilur vel og hlær í huga sjer að uppátæki Rapidryder hertogafrúr, að spilafíkn frú Boun- cer og lepruskap ungfrú Fitz Gander. Hon- um kemur það best af öllu, að ekki sje smjaðrað fyrir honum, en að menn sjeu lát- lausir, hreinskilnir og tilgerðarlausir í fram- komu. Jeg ber mesta virðingu fyrir prinsin- um af Wales allra þeirra konungborna manna, sem nú eru uppi á þessum vesæla hnettiog það er einmitt vegna þessarar virðingar, að jeg vil ekki vera að troða hann um tær — að minsta kosti ekki núna, en kem til Will- owsmere, þegar þessari konungtegu heim- sókn er lokið. T

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.