Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 30

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1926, Blaðsíða 30
60 NÝJAR KVÖLDVÖKUR- eins og þeir vildu sagt hafa: »Já, það erum við svo sannarlega!« En vökuliðanum varð svo bilt við, að hann hefði dottið útbyrðis, hefði jeg ekki þrifið í lurginn á honum, því að hann hafði staðið uppá slíðraborðinu. En hann misti byssuna, og á hana rjeðust nú allar mannæturnar, svo að sjórinn stóð í Ijósum loga. Og ekki man jeg betur en að dregið væri eitt sterlingspund og 16 shillingar af kaupinu hans uppí byssuverðið. En hann sá af forlögum byss- unnar, hver afdrif hans hefðu orðið, hefði hann farið sömu leiðina, enda tilti hann sjer aldrei uppá slíðraborðið framar. Og það fór líka eins og mig grunaði, herra Simple. Quli-Jakob Ijet ekki standa á sjer. Fyrst var matráðurinn kallaður til reikningsskapar fyrir öll sín fjár- dráltarbrögð, en við gerðum okkur litla rellu útaf því, þó að landkrabbarnir nöguðu af hon- um kjelþjótturnar, því að hann hafði »snuðað« okkur of mikið til þess. Rá kom röðin að tveim foringjaefnum, einmitt drengjum á yðar aldri, Simple sæll; já, hann var ekki lengi að stúta þeim, veslingunum. Svo dó undirstýri- maðurinn og hver af öðrum, þangað til ekki var eftir nema 50 af allri skipshöfninni. Og loksins sló hann eign sinni á kapteininn og þá var líka svo að sjá, að hann væri búinn að fá fylli sína og hlífði okkur hinum. En þegar kapteinninn var dauður, hurfu allir mann- ætuháfarnir og sáum við þá aldrei síðan.« Slíkar sögur sagði hann mjer og hinu for- ingjaefninu, er með mjer var á vöku, og það get jeg fullvissað lesendann um, að okkur var ekki rólegt innanbrjósts á eftir. Með hverjum deginum sem leið, færðumst við nær og nær eyjunum og fanst okkur sem við værum jafn- framt að færast nær og nær okkar eigin gröf. Og einu sinni fór jeg að minnast á þennan ótta minn við O’Brian. Hann hló að mjer og fullvissaði mig um, að óttinn og hræðslan yrði fleiri mönnum að bana en gallkaldan og aðrar hitabeltissóttir. »Þú verður að gá að því, að Svinburne gamli er gamall hrekkja- limur, og dregur dár að þjer fyrir hræðsluna. Fjandinn er líka sagður margfalt svartari en hann í raun og veru er, og eins hygg jeg að sje með Gula-Jakob.« Við vorum nú komnir í námunda við Bir- badoseyjuna; altaf hjelst sama veðurblíðan og altaf var æsibyr. Flugfiskarnir ærðust uppí stórhópum, er freigátan klauf bláar öldurnar svo freyddí undan kinnungunum, og höfrung- arnir eltu skipið þúsundum saman og Ijeku sjer og byltu í sólglitrandi vatnsskorpunni, og leit svo út stundum, sem þeir væru að renna í köpp við hið hraðsiglda sk p. Náttúran var öll svo yndisleg, að við hefðum sjálfsagt allir verið kátir og hressir í anda, et eigi hefði kapteinninn verið jafn sárþjáður og hann var, og virtist fara dagversnandi, og í öðru lagi. ef hræðslan við þetta pestarvíti, sem við vorum á leið til yfir hina sólfögru vatns- paradís, hefði eigi gert okkur þungbúna og kvíðandi. Falcon næstráðandi, sem auðvitað var nú æðsta ráð á skipinu í forföllum kapteinsins, var alvarlegur og áhyggjufullur, og umhyggja hans fyrir því, að kapteininum liði svo vel, sem kostur var á, var aðdáanleg. Engin var nú meiri yfirsjón í hans augum en sú, að vald óþarfa hávaða, er hugsanlegt var að kynni á einhvern hátt að raska ró hins sjúka. Er við áttum tæpa þriggja daga leið til Bar- bados, þraut alt í einu leiðið, við láum logn- dauðir og k?pteininum þyngdi mjög. Og nú sáum við í fyrsta skifti hinn mikla ránvarg, Atlantshafsháfinn hvíta. Rað eru til margar teg- undir háfa, en ógurlegastur er þessi hvíti grunn- háfur. Lengd hans er þó sjaldan yfir tólf fet, en hann er þeim mun digrari. Ekki fengum við leyfi til að veiða neinn, af vörgum þessum, því að Falcon óttaðist, að það ylli of miklum há- vaða. Brátt rann á góður byr og tveim dög- urn síðar vorum við komnir svo nálægt eynni, að settir voru verðir í stafn til að skygnast um eftir landsýn.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.