Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Síða 12
74 NÝJAR KVÖLDVÖKUR sagt við hann í fyrsta sinn, þá held jeg, að hann mundi krjúpa niður og biðja: »Fyrirgef oss vorar skuldir, sem vjer höfum hlaðið á oss á fullorðinsárunum«. Og á eftir yrðu verk hans heilög. »í upphafi var orðið og orðið var hjá guði og orðið var guð«. Að boði þess kom lífið ham á jörðunni og það er endurhljómur þess í fyrstu orðum barns- ins. Orð — og það varð ljós. Hamingj- an þróast í hjörtum mannanna. 15. júlí. Hún situr hjá fánastönginni og rótar í moldinni með ofurlítilli reku. Ljósu lokk- arnir hennar hreyfast fyrir blænum. 20. júll. Blessaður sje þessi garður. Hún hefir fundið blóm og borið að vitum sínum, Sólargeislarnir og hárlokkarnir renna sam- an í gullna strengi. 4. ágúst. í dag borðaði hún egg. 1. nóvember. Konan mín kvarlaði um það yfir boiðum í dag, að eggin væru orðin dýr. Jeg fór að skellihlægja. Hún horfði undrandi á mig og jeg flýtti mjer að verða aftur alvarlegur. Jeg gat ekki einu sinni sagt henni, að jeg hló af fögnuði yfir því, að geta aflað Elísu litlu viðurværis með vinnu minni. Jeg veit, að það er heimskulegt, en á því augnabliki fanst mjer yndislegt, að eggin skyldu vera dýr. Jólanóttina 1897. Elsku, litla Elísa mín! Jeg hefi lofað þjer því að halda dagbókina, þar tii þú getur sjálf tekið við. En síðan þú fórst að tala og leika þjer, tala jeg og leik við þig frek- ar en að skrifa. Og um hvað ætti jeg að skrifa annað en það, að faðir þinn vissi ekki hvað lífið var fyr en þú komst til hans. 14. maí 1898. Afmælisdagurinn. Hún hefir eignast nýj- an sumarkjól og brúðu, sem er alveg eins klædd. En hvað hún var glöð yfir nýja kjólnum og hún gætti þess vandlega, að hann yrði ekki undir eins gamall, þ. e. óhreinn. Jeg fyltist gleði, eins og hún, og jeg er viss um, að það var nákvæmlega sama gleði, að vísu ekki af sama toga spunnin, en áreiðaniega sú sama. Pað var eins og gleðin streymdi úr augum hennar í mín og jeg naut þeirrar gleði næstum líkamlega. Ekki skil jeg konurnar. Pað var hugmynd konu minnar, að Elísa og brúðan skyldu vera eins klæddar, og jeg skal viður- kenna, að þá umhyggju hefði jeg aldrei get- að átt, en þegar jeg leit til hennar, í þeirri von, að við gætum öll mæst í sameiginlegri gleði, þá fann jeg, að tilfinningar hennar voru af öðru bergi brotnar. Pað var auð- sætt, að fyrir henni var hvorttveggja brúðu- kjólar. Parna stóð hún svo fullorðinsleg hjá okkur og við urðum svo lítil og barna- leg í gleði okkar — en áreiðanlega mikið hamingjusamari en hún, sem var svo stór og sjálfri sjer nóg. 25. júní. Nei, konur skil jeg ekki. Pað gleður konu mína, að Elísa vekur athygli og hrifn- ingu. Mjer er illa við þann svip, þótt hann sje að sjálfsögðu viðeigandi. Hvort sem er á götunni eða í sporvagni, eru menn ávalt að ávarpa hana og gefa henni sætindi. Það er auðvitað rangt af mjer, en það snertir mig óþægilega, að sjá móður hennar hreint og beint þykjast af skjallinu og áminna hana um, að hneigja sig kurteislega. Mjer finst, að fólk geti látið hana í friði og jeg sje, að hún hugsar það sama, þó að hún svari spurningum þess kurteislega. Auðvitað verður barnið að haga sjer vel og hafa fallega framkomu, og jeg er móð- ur hennar þakklátur fyrir, að hafa kent henni það, en jeg get ekki þolað þessa sýningu á barninu. Og hveinig líta svo þessir dá- endur á hana? Jú, þeir skoða hana sem

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.