Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 25

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 25
NÝJAR KVÖLDVÖKUR -87 hennar færi að heyrast um gervalt húsið. Kinnar hennar voru hvítar og hún nötraði af ekka, Hann reyndi að skýra málið fyrir henni, að þetta væri eigi starf fyrir hana eða greif- innuna, en hún hristi höfuðið og mælti: »Við höfuni svarið þess dýran eið.« Pví fleiri rök, sem hann bar fram máli sínu til stuðnings, því þrárri varð hún, þar til loks hann hætti við frekari tilraunir að fá hana á mál sitt og fór burtu til að leita að frú Fazello, en síðustu orð Lucreziu bergmáluðu í eyrum hans: »Ef við deyjum, verðum við grafnar; ef við lifum, skulum við framselja þá í hend- ur böðlinum.« Huggunin og hjálparvonin frá frænku Margheritu var heldur af skornum skamti. »0, kæri drengurinn minn! Jeg er yður sammála í öllu,« mælti gamla frúin. »En hvað get jeg gert? Jeg veit betur en þjer, hvaða árangur slíkt ber, en Margherita er eins og stálið. Hún mundi fórna sjer sjálfri, Lucreziu og jafnvel mjer, til þess að koma fram heíndum fyrir Martel. Og Lucrezia er eldbrjáluð, og þær gera eigi annað allan daginn en bera ráð sín saman við Aliandro, sem sjálfur er eigi langt frá að vera glæpa- maður. Mín orð virða þau að vettugi og fara með mig eins og þeim sýnist.« Hún byrgði andlitið í höndum sjer og grjet hljóð- lega. »Og við vorum öll svo gæfusöm yfir Martel!« »Hvað hygst hún fyrir?« »Jeg veit það ekki. Jeg hefi þrábeðið hana, að bera sorg sína fram fyrir guð. Biskupinn, sem kom til þess að gifta hana, er á mínu máli. Pað er klaustur eitt í Palermo —« »Nei, nei!« hrópaði Blake ákafur. »Ekki það! Pað er ekkert líf fyrir hana. Hún má ekkert gera fyr en sorgin hefir fyrnst.« »Sorg hennar fyrnist aldrei. Pjer þekkið hana ekki.« Þegar hann sá, að gamla frúin gat ekk- ert, sneri hann aftur við og gekk inn í garð- inn og reyndi að nýju að fá ungu stúlkuna til að hætta við áform sitt, en alt árangurs- laust. Hann var mjög þungt hugsandi um hag sinn um kvöldið, er hann kom til San Sebastiano. Pví meir sem hann hugsaði málið, því Ijósara varð honum, að það var skylda hans að vera kyr á Sikiley, þar til Margheritu væri batnað. Martel hafði beðið hann fyrir hana. Hann ætlaði að taka að sjer Ieitina að morðingjunum fyrir hana, en láta hana skipa fyrir. Hann ætlaði að gera sig nauð- synlegan fyrir hana. Eftir nokkurn tíma ætlaði hann svo að telja hana á, að fara burt og leita sjer skemt- unar, og þá mundi æska hennar gera það, sem á vantaði. Pegar hann fór út úr lestinni í San Se- bastiano, kom stöðvarstjórinn á móti hon- um með símskeyti. Áður en hann opnaði það, vissi hann hvað í því var. Átti hann þá aldrei að losast við þessi ömurlegu skylduverk -- aldrei frjáls að því, að gera eins og hjarta hans vildi? Skeytið hljóðaði þannig: »Komið fljótt! Kenear.« Hann virti skeytið alvarlega fyrir sjer nokkra stund — gerði samanburð á skyld- um sínum við Martel og skyldunum við móðurina — en sú bið varð stutt. Hann fór inn á stöðina og. sendi svar. Hann reyndi alls eigi að kasta ryki í augu sjer. Pað eitt, að Dr. Kenear hafði verið sóttur til New Orleans, sannaði það betur en sjálft skeytið, að ástand móður hans var verra en hann hafði hugsað sjer. Hún var einmana og kallaði hann nú heim. Pað var einungis um eitt að ræða — heimför. Hann staðnæmdist við herbúðirnar til þess að skýra Neri óbersta þörfina á því, að hann færi. »Þjer þurfið eigi að vera hjer,« mælti her-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.