Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 32

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 32
94 NYJAR KVÖLDVÖKUR kennara eða heyrara. Átti hvor skðlinn um sig að geta veitt viðiöku til náms 24 Iæri- sveinum. Biskup átti að leggja piltum til gott fæði, vaðmál til fatnaðar, rekkjuvoðir, Ijós og helztu nauðsynjar. Fátækir piltar skyldu og fá bækur og pappír eftir þörfum hjá biskupi. Pað er bannað að láta pilta vinna, vera í ferðalögum eða snúningum. Pá eina skyldi taka í skóla, er bezt þóttu til fallnir, að dómi biskups og skólameistara, og hjeti því að stunda nám sitt með kostgæfni, lifa guðrækilega og þjóna kirkjunni á síðan, þ. e. gerast prestar. Skólameistaralaun voru 60 dalir á ári, er biskup átti að greiða í smjöri, vaðmálum, fiski, peningum eða öðrum vör- um, þeim er hann viidi, og gott fæði þar að auki. Heyrari skyldi hafa 20 dali í laun í sömu vörum og gott fæði. Um iengd skólatímans er ekki talað, hefir líklega verið ætlast til þess, að skólarnir stæðu bæði sumar og vetur, en því var aldiei fylgt, og lítur helzt út fyrir, að skólanum á Hólum hafi fyrst lengi framan af verið stjórnað al- veg eftir geðþótta biskups og skólameistara. Skólarnir voru reknir á kostnað biskupa, en piltar voru sjaldan eða aldrei.'svo marg- ir á Hólum, sem reglugerð Hvítfelds gerði ráð fyrir. Konungur lagði ekki grænan eyri til skólans. Stóð fjárþröng skólanum því fyrir þrifum. Skólameistari var mjög háður biskupi, nokkurskonar þjónn hans, og hefir því verið erfitt að njóta sín í því embætti. Menn voru líka sjaldan lengi skólameislarar, en þeir sátu jafnan fyrir beztu brauðunum í biskupsdæminu. Skóla- meistaraembættið var nokkurskonar vonar- brjef fyrir góðu embætti handa ungum, efni- legum mönnum. — Hólaskóli raknar úr rot- inu eftir langan svefn haustið 1552, Ólafur biskup Hjaltason fjekk danskan skólameist- ara, sem hjet Hinrik Lafranzson, og kallaði hann sig Laurentius. Kom hann út með Ólafi biskupi, er tók við stólnum eftir Jón Arason, myrtan og dæmdan landráðamann í gröf sinni. Gegndi Laurentius embættinu stuttan tíma. Annar skólameistarinn hjet Marteinn, og er hans geiið 1569, en hann hefir þá sjálfsagt dáið eða flutst burtu. Póttist hann illa haldinn hjer. Guðbrandur Porláksson var hinn þriðji í roðinni, en að- eins eitt ár, en fór þá ufan til þess að taka biskupsvígslu. Hafði hann áður verið skóla- meistari í Skálholti. Var þá sendur hingað danskur maður, Hans Gyldenbrun að nafni. Var hann aðeins þrjú ár skdlameistari. Næstur í röðinni er Sigurður Jónsson, áður fyrir Skálholtsskóla. Hafði hann lengi stund- að nám við Kaupmannahafnarháskóla og síðan við háskólann í Rostock. Lærði hann hebresku ýyrstur íslendinga. Hann var lær- dómsmaður mikill, en harður og refsinga- samur. Helztu námsgreinar voru latína og guð- frœði. Grískunám hófst ekki fyr en um 1600, ófullkomið þó. Skólatíminn var venju- lega frá Mikaelsmessu á hausti til Kross- messu á vori (3. Maímánaðar), og stundum kom það fyrir, að piltar voru sendir heim á útmánuðum, sakir matarskorts. Samkvæmt kgl. opnu brjefi 29. Marts 1560, útgefnu í Árósum, gaf konungur tíundar sínar af Eyjafjarðar og Skagafjarðar- sýslum til skólahalds á Hólum. Jeg geri ráð fyrir, að biskupi hafi þótt þetta lítt höfðinglegt, því að þessi tíund konungs og krúnunnar var biskupstíundin, sem var fjórðungur allrar tíundar landsmanna, þeirra er voru í skiftitíund. Var tíund þessi fram- án af aðaltekjugrein biskupa, þangað til biskupstólarnir eignuðust jarðir til muna. Með brjefi 16. Apríl 1556 kveður konungur svo á, að til sín skuii falla sá hluti tíundar, sem biskupar hafi áður haft, þ. e. sviftir þá biskupstíundinni, og svo rausnasí Friðrik II. til þess að fá biskupi fyrst um sinn tíund af þessum tveimur sýslum, til þess að standa straum af kostnaði við skólann á Hólum, Svona voru gjafir konunga í þann tíma til biskupanna og skólanna. (Framh.).

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.