Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Side 34

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Side 34
06 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Áhrif Parísar á allan heiminn hafa verið feikileg, meiri en nokkurrar annar borgar, bæði hvað Iistir, tísku, skáldskap og stjórnmál snertir, og hefir peg- ar kringuin 800 verið ein af miðstöðvum menning- arinnar í heiminum. Hvað frönsk stjórnmál snertir var París áður fyr eitt og alt, en nú er talsverð breyting orðin þar á. Sveitahjeruðin og íbúar þeirra hafa fengið meiri völd og áhrif. Forseti lýðveldisins býr í Elysée-höllinni, fulitrúamálstofan er í Palais Bourbon og öldungaráðið í Luxem- bourg-höllinni. ÝMISLEGT. Þýðing spilanna. Pað var i' gamla daga. Herinaður nokkur var í kirkju. Meðan á guðspjónustu stóð, tók hann spil upp úr vasa slnum og skoðaði þau nákvæmlega. Liðþjálfi nokkur var Iika í kirkjunni. Hann sá þetta og kærði það fyrir höfuðsinanni staðarins, sem sagt var að hefði verið Friðrik rikiserfingi, er seinna varð Friðrik konungur 7. Hann kallaði hermanninn á sinn fund og tjáði honum, að hann væri ákærður fyrir að hafa verið niðursokkinn í spil i kirkjunni. „Pú hefir spottað guð og söfnuðinn og þess vegna verður þú að húðstrýkjast." Hermaðurinn heilsaði að hermannasið og mælti um leið: „Yðar hátign! Jeg hefi aldrei á æfi minni lært að Iesa, svo að jeg hefi ekki neitt gagn af bók- um. Aftur á móti hefir móðir mín kent mjer, hvað spilin þýða.“ „Útskýrðu þetta nánar,“ mælti rikiserfinginn. „Það skal jeg gera, yðar hátign, ef þjer leysið mig þá undan húðstrýkingunni." Ríkiserfinginn hjet þvi. „Pegar jeg horfi á 1 — ás — niinnir það mig á, að til er aðeins einn guð og að hann hefir skapað himin og jörð og alt, sem er á jörðunni. Tvistur segir, að Jesús sje bæði guð og mað- ur, en þristur að guð er þríeinn: faðir, sonur og heilagur andi. Fjarkinn minnir á hina 4 guðspjalla- menn: Maltheus, Markús, Lúkas og Jóhannes. Fimmið þýðir hin 5 sár Jesú, en sexið, að það eru 6 virkir dagar í vikunni. Sjöið minnir á hvíld- ardaginn, en áttan, að aðeins 8 manneskjur frels- uðust í syndaflóðinu. Nían þýðir, að þegar Jesús læknaði hina tíu líkþráu, voru níu af þeim van- þakklátir." Þessu næst tók hermaðurinn laufag06ann, lagði hann til hliðar og mælti: „Hann er óhæfur. Hinir 4 kóngar þýða Heródes, ásamt hinum þrem vitr- ingum frá Austurlöndum, sem komu og tilbáðu Jesú. Drotningarnar þýða Maríu mey og hinar þrjár konur, sem fóru til grafar Jesú. Gosarnir 3 þýða hina 3 böðla, sem krossfestu Jesú. Pað eru 12 myndir í hverjum spilum, eins og mánuðurnir í árinu. 52 eru spilin, eins og vikurnar í árinu. 365 dagar eru í ári, eins og spilin gilda að stokkn- um meðtöldum. Laufið þýðir kross Jesú, spaðinn gröf hans, tfgull hinar fjórar höfuðáttir. Hjartað þýðir, að við eigum að sækja guðshús með gleði og opna þar hjörtu vor. Petta er nú skýring min, yðar hátign." „Þú hefir ekki sagt mjer neitt um laufagosann.“ „Laufagosinn þýðir Júdas, sem sveik Jesú, eða liðþjálfa þann, sem kærði mig.“ Ríkiserfinginn gaf hermanninum 2 spesíur (8 krónur) að verðlaunum fyrir þýðingu hans á spil- unum, því að slíka skýringu hafði hann aldrei heyrt fyr.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.