Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 10

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 10
104 NÝJAR KVÖLDVÖKUR gagnvart yður ekki tekið neinni breyt- ingu«. Hann beið nokkra hríð, áður en hann sagði nokkuð, en lét eins og tilfinningar hans bæru hann ofurliði, svo að hann mætti ekki mæla. — Loksins sagði hann alvarlega: »Það hryggir mig af öllu hjarta að heyra það, og eg- vona til Guðs að hann snúi huga yðar áður en langt um líður, svo að eg þá fái annað svar. — En það veit sá sem allt veit, að það er langt frá mér að reyna að nota mér erfiðleika yðar nú. Þér getið því óhrædd látið mig hjálpa yður, þótt þér viljið ekki taka ást minni. — Mistress Barbara, viljið þér koma með mér?« »Koma með yður?« hrópaði hún. »Já — lafði mín, móðir yð- ar fer með okkur, og við þrjú skulum fara og leita föður yðar uppi í Cornwall, því sannleikurinn er sá, að einasta ráðið til að bjarga yður úr hættu er að flýja«. »Móðir mín er of veik til þess að ferð- ast«, mælti Barbara; »hefir ekki faðir minn sagt yður frá því?« »Eg hefi ekki hitt Quinton lávarð«, svaraði hann. »Það var Monmouth hertogi sem sagði mér frá bréfi hans, hann nefndi reyndar eitthvað um sjúkdóm móður yðar, en eg treysti því, að henni væri batnað«. »Móðir mín getur ekki ferðast, það er ómögulegtk Hann færði sig dálítið nær henni og sagði: »Munið að Fontelles kemur hingað á morgun — og ef þér þá eruð hérna...! En ef það er einhver annar, sem þér frekar viljið leita til en mín...« Hann þagnaði og horfði »rannsakandi á hana. Hún sat sorgmædd og örvilnuð. — Hún vissi, að það var annar, sem hún gat leit- að til — og ekki langt í burtu. En stæri- læti hennar bannaði henni að senda hon- um boð. Við höfðum skilið í reiði. Eg var búinn að iðrast sáran eftir þeirri hlut- deild, sem eg átti í ósamlyndinu á milli okkar, og það er líklegt að eins hafi verið ástatt fyrir henni, en því er svo varið að því meira, sem maður finnur til ávirð- ingar sinnar, því erfiðara er að leita sætta. »Er Símon Dal hér í Hatchstead?«, spurði Carford snögglega. »Eg veit ekki, hvar hann er nú«, svaraði Barbara, »hann fylgdi mér hingað, en hann hefir ekki látið til sín heyra síðan við skild- um«. »Ætli hann sé þá ekki áreiðanlega farinn?« sagði hann. »Eg veit það ekki«. »Jú, það hlýtur að vera, annars væri það ófyrirgefanlegt skeytingaiieysi af honum — já, hrein og bein ókurteisi!« »Hann frelsaði mig!« »Það er alveg sama!« hrópaði hann, »hverjum almennilegum manni ætti að finnast það enn frekari hvöt til að veraáverði, ef hann hefði ver- ið svo heppinn að geta gefið tilefni til-að slík kona sem þér hafið ástæðu til að vera honum þakklát«. Honum fannst nú, að hann hefði sagt nóg um þetta efni og fannst það ekki ráðlegt að ráðast frekar á mig í áheyrn hennar að svo stöddu. — »Hvað ætlið þér að afráða? spurði hann svo. »Þessi Fontelles getur þó ekki tekið mig og flutt mig burtu á móti vilja mín- um?« hrópaði hún. »Jú, það er einmitt það, sem hann getur«, svaraði Carford. »Hann gerir það eftir boði konungsins — og hver ætti að geta aftrað honum?« Hún stökk á fætur og hrópaði: »En þér, lávarður minn!« »þér eruð nýbúinn að sverja, að þér séuð reiðubúinn að gera allt fyrir mig! — Eg get ekki og eg vil ekki fara ein með yður, en nú getið þér sýnt, að yður hafi verið alvara með það, sem þér sögðuð — og þér verðið þá að verja mig fyrir de Fontelles og að ó- hlýðnast skipunum konungsins fyrir mín- ar sakir!« Carford stóð hreyfingarlaus, forviða yfir breytingu þeirri er orðin var á lát- bragði hennar. Hann hafði ekki séð fyr- ir, að hún mundi snúa málinu á þennan veg, og það kom sér afar illa fyrir hann.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.