Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 22
116 NÝJAR KVÖLDVÖKUR líka hérna beint fyrir augunum á mér, Símon, — hérna í mínum eigin lysti- skógi!« sagði Barbara. — Eg sleppti henni úr faðmi mínum og féll auðmjúk- lega á kné. — »Má eg aðeins kyssa þó ekki sé nema hönd þína?« spurði eg iðr- andi. Hún flýtti sér að leggja hana að vörum mínum. — »En hversvegna var hún að skrifa mér?« Hvíslaði Barbara. »Nei, vina mín, eg veit það ekki«, svar- aði eg. »En eg veit það, Símon — hún elskar þig!« »Hvers vegna hefði hún þá átt að vera að skrifa? — Og eg held ekki....« »Jú, einmitt þess vegna; og Símon, auðvitað elskar hún þig!« sagði hún. »Nei«, mælti eg, »eg ímynda mér heldur, að hún hafi kennt í brjósti um...« »Nei, ekki um mig!« hrópaði Barbara æst. »Eg vil ekki hafa, að hún kenni í brjósti um mig!« »Þig«, sagði eg ringl- aður, og bætti við alveg þvert á móti því sem eg ætlaði að segja áður: »Auðvitað hefir hún ekki kennt í brjósti um þig — það hefði líka verið skárra!« — Málið var þannig skýrt þá — en núna, þegar eg íhuga það alveg rólega, þá verður mér alltaf á að spyrja, hvers vegna Nelly Gwyn fór að leggja það á sig að skrifa Barböru þetta bréf — hversu stutt, sem bréfið var, þá hefir það þó kostað hana hina mestu fyrirhöfn, — og hvers vegna skrifaði hún Barböru og ekki mér — og hvers vegna skrifaði hún ekki t. d.: »Sí- mon, hún elskar þig!« í staðinn fyrir það, sem eg las á seðlinum, sem eg tók frá Barböru: »Fagra flón! Hann elskar þig!« — En eg spyr ekki upphátt, því enn í dag mundi Barbara ekki þola að heyra, að bréfið hefði verið ritað af brjóstgæðum við hana. »En hún kenndi í brjósti um þig, Sí- mon, af því að hún elskar þig, og þess- vegna skrifaði hún mér!« Eg lét það gott heita — ætti maður aldrei að læra að verða hyggnari! »Segðu mér nú«, sagði eg, »hversvegna eg má ekki hitta Car- ford lávarð«. »Þú mátt hitta Carford lá- varð eins fljótt og þú vilt, Símon«, svar- aði hún með sigurbrosi. — »Já, en fyrir fáum mínútum...« »Fyrir fáum mínút- um!« hrópaði Barbara í ávítunarróm. »Jæja, góða — fyrir heilum mannsaldri síðan, var þér lífið um að gera, að eg fengi ekki að tala við hann«. »Símon, þú ert 1 j óti — Hann vissi það — eg sagði honum það«. — »Þú sagðir honum það, áður en þú sagðir mér það?« »Nú, hann spurði mig um það á undan þér!« Eg reyndi ekki að hefna þessa svars. — Allt, . sem gerði henni ánægju var mér ánægja líka. — »Hvernig þorði eg að segja það við hann?« hélt hún mjúklega áfram. »Mig hefir alltaf langað til að segja öll- um heiminum það — og samt var eg allt- af hrædd um, að hver maður gæti lesið það í andliti mínu«. »Nei, þú duldir það mjög vandlega — meira að segja fyrir mér var það hulinn leyndardómur«, mælti eg í einlægni, en Barbara notaði fyndni sína gegn mér og hafði svar á reiðum höndum: »Það var nú ekki marka, þú hafðir nóg að gera með að horfa á annað andlit!« Eg bandaði hendinni mótmæl- andi og hún greip hana og mælti inni- lega: »Eg skal aldrei minnast á það framar, Símon!« Þar næst komum við okkur saman um, að það væri nauðsynlegt að tala við Car- ford lávarð, og við gengum af stað í átt- ina til hússins, til þess að finna hann. En við fórum okkur hægt. — Tunglið var þegar komið upp og skein bjart, áður en við komumst í trjágöngin og sáum húsið og hlaðið fyrir framan það. — Við höfð- um svo margt að segja hvort öðru nú og svo margs að minnast. Við stóðum kyrr í öðru hvoru spori og hvísluðum spurn- ingum okkar: »Manstu?« — skýringar fylgdu á því, hvernig við höfðum farizt á mis og misskilið og að lokum fundizt...

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.