Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 29

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 29
SÍMON DAL 123 um örmum. Eg hafði hjálpað henni til sigurs og til að ná valdi sínu yfir honum aftur, og mér þótti vænt um, að eg hafði getað hjálpað henni. En eg gat ekki séð að málum sjálfs míns væri betur borgið en áður. — Eg var lengi einn í stofunni, og þó konungurinn hefði skipað mér að bíða sín; þá kom hann ekki aftur. Nelly kom ein — hlægjandi og hamingjusöm og sigrihrósandi. Hún greip báðar hendur mínar og áður en eg vissi af var hún bú- in að kyssa mig á kinnina. — Nei, ann- ars, það er bezt, að eg sé hreinskilinn — eg vissi þegar hún ætlaði að gera það, en mér var ómögulegt að komast hjá því, án þess að vera ókurteis. »Við höfum unn- ið!« hrópaði hún. — Eg hefi það, sem eg óska, og þér, Símon, þér eigið að koma til hans í Whitehall á morgun. Hann hefir fyrirgefið yður allar yðar yfirtroðslur, og hann ætiar að gera fyrir yður, hvað sem þér biðjið hann um. — Hann lofaði mér því alveg statt og stöðugt!« »Veit hann, hvað eg ætla að biðja hann um?« »Nei, ekki enn. — ó, eg vildi óska, að eg gæti séð framan í hann! Þér skuluð ekki hlífa honum, Símon. Segið þér honum — já, segið þér honum sannleikann — beisk- an, nakinn sannleikann!« »Hvernig á eg að fara að því?« spurði eg. »Jú, að þér elskið, hafið alltaf elskað og munið ávalt elska Barböru Quinton — og að þér elsk- ið ekki, munið aldrei elska og hafið aldrei elskað — já, hafið ekki viljað gefa eitt heystrá fyrir Eleanor Gwyn!« »Er það nú að öllu leyti sannleikanum sam- kvæmt?« spurði eg. Hún hélt enn báðum höndum mínum, hún þrýsti þeim dálítið og andvarpaði: »Nú — já, það er sannleikanum sam- kvæmt — við skulum láta það vera það. Hvað gerir það þó einhver maður hafi lifað einu sinni, þegar hann er dauður og þó hann hafi elskað einu sinni, þegar hann elskar ekki lengur? »Eg vil nú samt ekki segja honum annað, en það, sem satt er«. sagði eg. »Þér skammist yðar ekki fyrir það, sem þér gætuð sagt?« hvíslaði hún og leit framan í mig. »Nei, það veit hamingjan!« svaraði eg og kyssti hönd hennar. »Mér finnst eg hefði mátt skammast mín, ef hugur minn hefði' aldrei hneigst í áttina til yðar!« »Farið þér nú leiðar yðar, Símon Dal!« hrópaði hún allt í einu óþolinmóðlega. — »Farið þér — til hennar Bai'böru yðar — til Hatchstead — í fásinnið — leiðindin — réttlætið!« »En við skiljum í vináttu!« bað ég. Fyrst bjóst eg við hæðnislegu svari, en svipur hennar breyttist og hún brosti ástúðlega um leið og hún svaraði: »Já, Símon, við skiljum í kærleiksríkri vináttu. — Og þegar þér heyrið fólk segja sitt af hverju um mi'g, þá skuluð þér segja þeim, að meira að segja svo góður maður sem þér hafið fundið ýmis- legt gott hjá Nelly«. »Það get eg sagt af öllu hjarta!« »Nei, eg kæri mig annars ekkert um hvað þið segið!« hrópaði hún hlægjandi; »en farið þér nú! Eg lofaði kónginum að eg skyldi ekki tala, nema eins og tíu orð við yður«. Eg hneigði mig og gekk til dyranna. Snögglega hljóp hún á eftir mér, eins og hún ætlaði að segja eitthvað en hætti við það. Eg staldraði við og beið. Að síðustu mælti hún — augu hennar voru feimnisleg og það var eins og hún ætti erfitt með að koma orðum að því: »Ef þér skammist yðar ekki fyrir, að nefna mig á nafn við Barböru, þá langar mig til að biðja jrður að segja henni, að eg óski henni alls góðs — og biðji hana að hugsa eins vingjarnlega til mín og hún getur!« »Hún hefir mikla á- stæðu til að hugsa vingjarnlega til yðar«. sagði eg. »Og þessvegna mun hún hugsa óvingjarnlega! Símon — nú verðið þér að fara!« Hún rétti mér hendina og ég kyssti hana. 16*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.