Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 32

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 32
126 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Sir!« Konungurinn leit niður og hleypti brúnum, eftir litla hríð leit hann upp aft- ur og ofboðlítið bros lék um varir hans; en rödd hans var samt sem áður mjög al- varleg þegar hann sagði: »Þér munið eft- ir M. de Perrencourt?« »Eg man mjög vel eftir honum, yðar hátign«, svaraði eg. »Það var samkvæmt hans eigin vali og ekki mínu, þegar þér fóruð af stað með honum áleiðis til Calais.« »Þannig skildi eg það líka þá, yðar hátign.« »Og það er trú manna og hans líka, að hann hafi vit á að velja sér menn — viljið þér leyfa mér að segja verkfæri, mr. Dal? — betur en nokkur annar þjóðhöfðingi í kristnum löndum. — Jæja, svo þér viljið giftast mistress Quinton? En hún er af hærri stigum en þér«, »Eg átti þó að giftast henni, yðar hátign!« »Hún er af hærri stigum en þér«, endurtók hann um leið og hann brosti við svari mínu. »En hún er ekki hærra sett en það, að hún mundi láta að orðum yðar hátignar — eða réttara sagt faðir hennar — eg fer nærri um vilja hennar sjálfrar«. »Yður vantar ekki sjálfsálit, mr. Dal«. »Hversvegna ætti eg ekki að hafa það. Eg sem hefi drukkið úr bikar konungsins?« svaraði eg. »Til þess að við ættum að vera vinir?« sagði hann. — »Og vitað það sem konungurinn leyndi!« »Þannig að við skyldum standa og falla saman?« »Og elskað það sem konungurinn elskaði!« Þessu svaraði hann engu, en sat um hríð steinþegjandi. — Eg varð var við, að augu margra hvíldu á okkur, og þóttist vita, að mörgum getum mundi vera leitt að því, hvaða starfi hann mundi ætla að trúa mér fyrir, eða hvernig staðið gæti á þeirri miklu hylli, sem hann sýndi mér, þar sem eg ræddi svo lengi við hann. En eg skeytti því litlu, því eg var að reyna að lesa hugsanir hans, og vonaði, að mér hefði tekist að fá hann yfir á mína hlið. Eg vissi vel, að hann gat hugsað sem svo, að eg ætti hjálpina að honum, en eg vildi ekki taka hana sem mútufé, hversu freist- andi sem það gat verið, og eg var hrædd- ur um, að hann mundi hafa misskilið mig, svo eg sagði: »Eg yfirgef borgina í kveld, yðar hátign, hvort sem eg fæ bæn. mína uppfyllta eða eigi, og hvort sem eg~ fæ hana uppfyllta eða eigi, skal eg vera þagmælskur — og í öllu því sem orðið getur, skal eg vera trúr þegn yðar há- tignark Ef til vill hljómaði þetta alltof hátíðlega eins og oft vill verða hjá ung— um manni, sem talar af hrærðu hj arta„, Hann svaraði engu; en leit upp og brosti . kankvíslega: »Segið þér mér nú, hvernig elskið þér hana, þessa mistress Quinton?« sagði hann. Við þessa spurningu varð eg allt í’ einu yfirkominn af feimni og vandræð- um. öll sú dirfska í framkomu, sem eg hafði vanið mig á við hirðina, yfirgaf mig, og eg stóð þarna orðlaus eins og kálfur. »Eg-------eg veit — það ekki«, stamaði eg. »ó, jú, — en eg er farinn að verða gamall. — Viljið þér ekki segja mér það, mr. Dal?« bað hann og fór að hlægja að vandræðum mínum. — En þó eg hefði átt lífið að leysa, þá hefði mér verið ómögulegt að verða við ósk hans. — Konungurinn beygði sig áfram og gerði Rochester og Monmouth hertoga, sem í þessum svifum nálguðust, merki um að koma. — Eg hneigði mig djúpt fyrir hertoganum og hann svaraði kveðju minni, hirðmannlega. Hann hafði ekki mikla ástæðu til að vera ánægður með mig, og það sást líka. Konunginum virtist vera reglulega dillað, þegar hann sá svip- brigði sonar síns. En hann sneri sér að Rochester og mælti: »Hérna, lávarður minn, stendur ungur maður, sem er á- kaflega ástfanginn í mjög elskulegri og saklausri stúlku. Eg spyr hann, hvemig ást hans sé — því eg er farinn að gleyma slíkum hlutum — og hvað haldið þér?

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.