Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 37

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 37
SSMON DAL 131 sMaðurinn hennar er grunaður um það -— með réttu eða röngu — hver veit það?« Það varð dálítil þögn. Presturinn beygði sig og lét fanga si'nn lausan á veg- inn. »Guð hefir kramið einn af þeim seku, Símon«, mælti hann, »ertu nú á- nægður?« »Eg ætla að reyna að trúa engu illu um hana«, sagði eg; og í alvarlegum hugsunum héldum við af stað. En Bar- bara og eg hægðum ósjálfrátt á okkur og urðum bráðlega langt á eftir eldri' mönn- unum. — Þegar við stóðum við garðshlið- ið vorum við orðin tvö ein. »Eg er svo fjarska sorgbitin yfir hertogaynjunni«, mælti Barbara og andvarpaði þungan. En í sama bili — sökum miskunnar for- sjónarinnar, sem lætur okkar eigin gleði reka utanaðkomandi sorgir á flótta, því annars gætum við ekki komizt gegnum heiminn, án þess að hjörtu vor springju af trega — hún leit á mig og brosti, lagði handlegginn um mig og þrýsti sér upp að mér. — »Vertu glöð — að minnsta kosti, vertu glöð í kveld, ástin mín«, hvíslaði eg, »því við erum komin i gegn um heilan skóg af hættum, og erum nú örugg hinu- megin við hann«. »örugg og saman«, hvíslaði hún. — »Og þó«, hélt hún áfram, »er eg hrædd um, að þú ætlir að verða slæmur eiginmaður, Símon, því núna strax í byrjun — nei, áður en við erurn byrjuð, hefir þú farið á bak við mig!« »Eg mótmæli...!« hrópaði eg. »Já, það var nú enginn annar en hann faðir minn, sem sagði mér frá heimsókn, sem þú hefðir gert í Lundúnum«. Eg laut höfði og horfði á hana. »Eg vildi ekki vera að trufla þig með því máli frekar«, sagði eg — »það var ekki nema sjálfsögð kurteis- isskylda«. »Simon, eg ætla ekki að erfa það neitt við hana«, mælti Barbara, »því eg er nú hérna í sveitinni okkar hjá þér, og hún er í borginni án þín«. »Og satt að segja«, bætti eg við, »býst eg við, að þið hvor um sig séuð mest ánægðar með það, eins og það er«. »Eg get ekki svarað fyr- ir hana!« mælti Barbara. Við gengum lengi þegjandi — og dag- urinn leið að kveldi. — Þeir hæðast að tali elskenda — látum þá gera það, segi eg af öllu hjarta — en þögn þeirra að minnsta kosti er heilög. Að síðustu sneri Barbara sér að mér og hló lítið eitt: »Sí- mon, ertu nú ekki glaður yfir að þú ert kominn heim?« Jú, víst var eg glaður. — Líkamlega hafði eg farið langa leið og í hugsun og hjarta miklu lengra, eftir dimmum villu- gjörnum götum, sem leiddu mig, eg vissi ekki hvert, en sem aldrei virtust liggja í áttina að heimahögunum aftur. En án þess að vita það sjálfur, hafði eg haldið í hendi mér þeim gullna þræði, sem var spunninn í Hatchstead á dögum bernsku minnar og æsku. — Að síðustu hafði eg gripið fastar um hann, og eg hafði snúið við og fylgt honum. Qg þannig hafði hann leitt mig heim — ekki ríkari en eg fór og ekki hlaðinn neinum metorðum, en eg var búinn að missa vissa drauma, sem ekki höfðu gefið mér frið — og eg var vonaði eg, heilbrigðari í hjarta og sál. — Eg horfði nú í hin dökku augu, sem störðu á mig eins og þau sæu í mér ein- asta skjól, gleði og líf; hún þrýsti sér að mér og hélt mér föstum, eins og hún allt- af stöðugt væri hrædd um, að eg mundi yfirgefa sig og halda af stað aftur út í skarkala heimsins. En síðasti óttinn lagði á flótta, síðasti efinn bráðnaði og hvarf og brosið kom aftur fullt af trúnaðar- trausti á varirnar, sem eg elskaði. Eg beygði mig yfir hana og hvíslaði: »Jú eg er glaður yfir, að eg er kominn heim!« En það var einn hlutur enn, sem eg varð að segja: Höfuð hennar féll niður á öxlina á mér og hún hvíslaði lágt: »Og þú ert alveg búinn að gleyma henni?« Augu hennar voru algerlega hulin. Eg brosti og sagði: »Alveg!« , 7*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.