Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Síða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Síða 42
136 1 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Innocentiusar III. til stofnunar reglu sinnar, rekumst við aftur á hann í Róma- borg. Bræðrunum hafði fjölgað mikið og reglan dafnað, svo nú gat hann gert ýms- ar meiri kröfur en áður. Annars er fátt kunnugt um þessa þriðju Rómaferð hans. Hann prédikaði í borgunum á leiðinni og í einni borginni er sagt að svölurnar hafi truflað ræðu hans. Skipaði hann þeim þá að þegja, og þær hlýddu. í Rómaborg prédikaði hann á strætunum og ávann þar nýja félags- menn. En mikilsverðast fyrir framtíð reglunnar var hin nána vinátta sem Frans batt þá við rómverska aðalskonu, sem hann jafnan síðan kallaði »bróður Jakobu«, í spaugi, vegna hins þrekmikla og karlmannlega lundarfars hennar. Kona þessi var 25 ára, gift Gratiano Frangipanis, manni af einni elstu og þektustu aðalsætt borgarinnar. Nafnið Frangipanis »brauðbrjótur« hafði einn af forfeðrum hans hlotið sem tignarheiti, þegar hann eitt sinn í hungursneyð hlaut þá stöðu, að deila brauði út meðal alþýð- unnar. Sjálf var Jakoba af norrænum ættum, fi'á Sikiley. Heimild páfa ti! krossfararinnar og kristniboðs hjá Serkjum fékk Frans oi'ða- laust. Steig hann nú á skip sem fara átti til austurlanda, en ferðin gekk illa og skipið strandaði á Balkanskaganum ofan- verðum. Var nú áliðið orðið sumars og engar skipaferðir austur þaðan og tíðar- far andstætt, svo Frans hugsaði sér að komast nú heim aftur. En eina skipið sem þar var ferðbúið til ítalíu, neitaði að flytja þá félaga. Tók þá Frans það ráð að fela sig í lestinni og gaf sig ekki fram, fyr en skipið var komið langt á haf út. Ferðin gekk illa og vegna stöðugra mót- vinda urðu þeir miklu lengur i hafi en ráð var fyrir gert. Varð nú skipshöfnin mat- arlaus, en þá keypti Frans sér frið og fyrirgefningu, með þvi að gefa þeim mat- arforða sinn með honum. Um leið og Frans aftur hafði fasta jörð undir fótum, hélt hann af stað í prédik- unarferð og fór borg úr borg. í borginni Ascoli báðust um þrjátíu leikmenn og prestar upptöku í regluna. Fólkið streymdi að honum hvaðanæfa og var ánægt ef það aðeins fékk snortið föt hans. Aðeins einn flokkur manna, kathar- arnir voru honum andvígir. Þeir voru hatursmenn kirkjunnar og prestastéttar- innar og gerðu þeim allt til svívirðu, en Frans krafðist skilyrðislausrar, blindrar hlíðni og undirgefni við páfa og kirkju og því um leið virðingar fyrir prestastétt- inni. A þessari ferð var það, að Frans snerí einum af helstu skáldum og umferða- söngvurum þess tíma, Vilhjálmi Divini til fylgis við sig. Divini var staddur í smá- bæ, San Severino, í klaustri einu, þar sem frænka hans var nunna. Frans prédikaði í klaustrinu og Divini heyrði til hans. Samtímamenn Frans, sem sagt hafa frá honum lýsa honum svo, að eiginlega hafi hann ekki verið tiltakanlega andríkur prédikari, en framsetning öll hafi verið óvenjulega áhrifamikil, en þó blátt áfram, og ræður hans hafi mest gengið út á sið- bót í lifnaðarháttum. Frans var strangur siðgæðispostuli og fann óhræddur að því sem honum fannst aðfinnsluvert og var þá oft allberorður. Hann vakti því ekkí aðeins aðdáun, heldur líka ótta og stund- um skelfingu. Hinn eilífi eldur og refsi- dómur Guðs, beið að hans dómi hvers þess syndara, sem ekki bætti ráð sitt. Ræður hans voru því oft sem svipuhögg, er sveið undan. Eins og fyr er frá sagt, heyrði skáldið’ Frans prédika í nunnuklaustrinu. Hann kom þangað, ásamt mörgum glöðum æskumönnum af forvitni einni. Fyrst í stað fannst honum lítið til um, en brátt

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.