Tjaldbúðin - 01.01.1898, Blaðsíða 45
—43—
sama hátt og safnaðarfundir annara íslenzkra, lút-
erskra safnaða hér í landi. Allir embættisrhenn
safnaðarins fram yfir íirsfund 7. jan. 1898 eru áður
taldir í riti þessu. Leng’st hafa þessir menn verið
aðalembættismenn safnaðarf'undanna: S. Þórðarsom
forseti, J. Pálsson, skrifari og 0. Olafsson, fjehirðir.
Fjármál og önnur mál safnaðarins hafa yflr höfuð
gengið ágætlega vel, einkum þegar þess er gætt,
hve erfltt aðstöðu söfnuðurinn hetir átt í öllu tilliti.
Og margir hafa án alls endurgjalds unnið mörg
sjerstök verk fyrir Tjaldbúðina <>" lagt fram pen-
inga til þeirra, t. d. hirðing Tjaldbúðarinnar og
viðgerð á henni o. s. frv., o. s. frv.
Margar skýrslur Tjaldbúðarsafnaðar eru á víð
og dreif í riti þessu. Auk þeirra skal hjer tekið fram :
ilanntal: Þegar Tjaldbúðarsöfnuður myndað-
ist 1. sept. 1894, skrifuðu sig 19 manns í söfnuðinn.
Nú e u í söfnuði nálega 400 manns.
I kirkjubók (liegister) safnaðarins er innfært:
Barnaskfrnir: 236 barnaskírnir eru innfærð-
ar, en helmingur þeirra er frá fyrri og seinni missi-
ónsferðum mínum um ýmsar nýlendur íslendinga.
Giptingar: 63 giptingar eru innfærðar, og
hafa 50 þeirra farið fram í Winnipeg, síðan Tjald-
búðarsöfnuðui' myndaðist.
Jarðarfarir: 71 jarðaiför er innfærð, og hafa
þær nálega allar farið fram hjer í Winnipeg, síðan
Tjaldbúðarsöfnuður var myndaður.
Barnafermingar: 80 fermingarb ">rn eru inn-
færð. Og hifa þessi börn veiið fermd í Tjaldbúð-
inni: