Tjaldbúðin - 01.01.1898, Blaðsíða 51
—49—
a) Að hann sje skírður og fermdur.
b) hegði sjer kristilega.
c) Samþykki og undir skrifi lög safnaðp.rins
d) Skuldbindi sig til að greiða fje til þarfa safnaðar-
ins eptir þvi, sem efni og ástæður leyfa.
t Ef einhver skirður en ófermdur æskir inngöngu í
söfnuðinn, þá fær hann inngöngu, ef hann er eldri
en 18 ára, ogprestur safnaðarins gefur honum skrif-
leg meðmæli sín.
2. Söfnuðurinn skal á allan hátt stuðla að því, að
1 börn þeirra, sem í honum standa, fái kristilega
fræðslu og uppeldi.
V.
Ejettindi.
1. Söfnuðurinn liefur vald til að skera úr og skipa
fyrir í öllum safnaðarmálum. Afl ræður úrslitum á
fundum.
2. Safnaðarlimir 15 ára að aldri hafa málfrelsi á fund-
um safnaðarins. Þeir, sem eru 18 ára að aldri og
uppfylla skyldur þær, sem til eru teknar í IV. 1.,
t hafa atkvæðisrjett, en kjörgengi aðe'ns þeir, sem eru
21 árs.
VI.
Embættismenn.
1. Embættismenn safnaðarins eru, auk prestsins, 5
fulltrúar (Board of Trustees). Eulltrúarnir kjósa
forseta, skrifara og fjehirði úr sínum flokki. Heim-
iit skal þeim vera að kjósa sér 2 meðráðamenn úr
söfnuðinum. Auk þess skulu kosnir 5 djáknar sam-
kvæmt XII. 1., 2 endurskoðunarmenn og 5 menn í
söngnefrid.
2. Söfnuðurinn ræður einungis þann fyrir prest, sem
tekið hefur próf í guðfræði, er vigður í hinni lútersku