Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Side 11

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Side 11
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 3 jörð þeirra kallar, að fara í nýja för og berj- ast við Ægi, og þeir finna hina sönnu gleði í því, er för þeirra gengur að óskum — er þeir vinna sigur. Sú þekking, er ég hefi á mínum stéttarbræðrum eftir margra ára samstarf, hef- ir fært mér heim sanninn um það, að engum er fjær skapi en þeim að ganga með hendur í skauti. Þeir eru allir boðnir og búnir til þess að taka til hendinni, er þess gerist þörf eða tækifæri gefst, jafnvel utan við eigin verka- hring. Þá skal með fáum línum minna á nokkur þau mál, er sjómenn hafa beitt sér fyrir til menningar- og öryggisauka fyrir stéttina og þá um leið fyrir íslenzku þjóðina almennt, og sem þeir nú óska eftir að hrint verði í fram- kvæmd. Því óneitanlega væri sú þjóð illa kom- in, með hnattstöðu íslands, er ekki hefði á að skipa hæfum mönnum í þeirri stétt. Ég tel þá fyrst skólabyggingarmál sjómanna. Það mál er búið að vera lengi á döfinni, sjó- menn hafa beðið árum saman eftir lausn þess og ennþá er allt á undirbúningsstigi. Það er gott að undirbúa málin vel, en biðin getur orðið of löng. Aðrar stéttir þjóðfélagsins eru þar langt á undan með uppfylling óska sinna, enda þótt þörfin hafi ekki á þeim sviðum verið eins aðkallandi. Nú viljum við fastlega vænta þess að ríkisstjórnin, er þetta mál hefir með hönd- um, láti ljúka undirbúningi og hefja verkið hið allra fyrsta. Við vitum, að þörfin er mikil fyrir þá skólabyggingu, er hér um ræðir. Við vitum einnig, að þörfin er viðurkennd af mörgum, en úrræðin virðist vanta, en þó eru þau fyrir hendi, ef viljinn til þess að leysa þetta stórmál sjó- mannastéttarinnar væri nógu einlægur. Að það miði að aukinni hæfni og menningu sjómanna almennt, að þetta mál fái skjóta og happasæla lausn, því neitar enginn, er skilur sambandið milli menntunar og hæfni. Svo má og benda á í sambandi við öryggis- málin, að nýbyggingu ljósvita, radíóvita, mið- unarstöðva og þokuhorna miðar svo sorglega seint, að það mega undur heita, ef þjóðir þær, er mest sigla við land okkar, fara ekki að undr- ast þann seinagang. Það virðist full ástæða til að vænta þess, að því fé, sem greitt er í vita- gjöld, sé eingöngu varið til nýbygginga og við- halds á vitum. Hraðinn eykst og skipunum fjölgar, sem sigla með fram ströndum lands- ins, en enn þá eru mörg útnes og skagar, svo ekki sé talað um innflóa, ýmist ólýstir eða illa, og má þó geta sér þess til, hve mjög öryggi sjófarenda er undir góðu vitakerfi komið. Þetta og margt fleira er það, sem sjómennirn- ir nú gera kröfur til þjóðarinnar um að hrundið verði í framkvæmd hið allra fyrsta. Það er engin ölmusa fyrir sjómannastéttina, þetta er jafnt fyrir þjóðina alla, því að á lífi og starfi sjómannanna byggist líf þjóðarinnar svo mjög. Nógu mörg eru þau slys, sem orðið hafa við strendur þessa lands og er nokkuð hægt að kenna það því, hve ströndin er illa lýst og svo því, hve mörg öryggistæki vantar um borð í skipin o. fl. Þegar úr þessu hefir verið bætt, getur enginn sér um kennt, þótt illa fari. Það er gott og blessað, þegar eitthvað stór- slysið hefir orðið — og sjálfsagt gert í hjart- ans meiningu — að tala þá um hetjur hafsins, er látið hafa lífið fyrir þjóð sína í baráttunni við æstar öldur hafsins, eða við hina myrku og hrjóstrugu strönd, en hitt er betra að allt sé gert, sem mannlegur máttur og þekking fær áorkað, til þess að fyrirbyggja slysin. Nú er sjómannastéttin að þjappa sér saman, ekki til illinda, heldur til þess að vinna að bætt- um skilningi á málum sínum og til leiðbein- ingar þeim og aðstoðar, sem eitthvað vilja fyr- ir hana gera. Á þessum degi vonum við, að augu margra opnist fyrir því, hve réttmætar og nauðsynlegar eru skjótar framkvæmdir á þeim málum, er hér hefir verið bent á. Við óskum, að bönd vináttu og skilnings milli sjómanna og annara stétta þjóðfélagsins treyst- ist æ betur, sem tímar líða. Ásg. Sigurðsson. Kaupið merki sjómannadagsins!

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.