Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Qupperneq 20

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Qupperneq 20
8 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ mílur þaðan sem við vorum. Skjót hjálp er nauðsynleg. Loftskeytastöðin í Reykjavík svar- ar þegar, sama gera fjórir togarar, sem líka eru að hlusta. Togarar þessir, sem voru að veið- um al-ljósaðir, slökkva fiskiljósin einn eftir annan, eftir því sem þeir fá innbyrt vörpuna, og kveikja á siglingaljósunum í staðinn. Svo leggja þeir af stað í áttina til strandstaðarins. Dimmviðrið gerir þeim ferðina erfiða. Til strandaða skipsins heyrist ekki lengur. Sjór hefir fallið inn í vélarrúmið og stöðvað Ijósa- vélina, en skipið var ekki útbúið rafgeymum til notkunar í neyðartilfelli. Loftskeytamaðurinn getur ekki lengur sent. Neyðarskeytið varð hans síðasta sending. En lengi vel getur hann hlustað á skipin, sem eru að nálgast, og hinir bágstöddu menn, fá vitneskju um hjálpina, sem er á leiðinni bæði frá sjó og landi. Skipið, sem ég var á, kom á strandstaðinn kl. 5 um morguninn. Björgunarstarfsemi frá sjó reyndist ófær. Við komum nægilega snemma til að geta orðið sjónarvottar að einhverju hinu átakanlegasta sjóslysi, sem orðið hefir hér við land. Sjórinn og sjólífið hefir tvennar hliðar, og það er ekki víst að allir sjái þær báðar með sömu augum. Unglingamir fagna venjulega fyrstu sjóferðinni, en hinn gamli sjómaður fagnar engu að síður þegar hann getur snúið bakinu að gamla Ægi. Hinn frægi brezki rithöfundur Johnson sagði einu sinni: „Enginn vildi í rauninni verða sjó- maður, því enginn vildi setja sjálfan sig í fang- elsi. Því það að vera á skipi er sama og vera í fangelsi, þar sem menn eiga á hættu að drukkna“. Við sjómennirnir finnum oft, hvað við erum miklir útlagar hjá þjóð vorri. Með samtökunum um sjómannadaginn hefst stórfelld viðleitni til að sameina sjómennina til sameiginlegra átaka, fyrir menningarlegum velferðarmálum sínum og til að vekja þjóðina til meðvitundar og skiln- ings á hinu mikilsverða hlutverki sjómanna- stéttarinnar í okkar þjóðfélagi. Dagurinn á einnig að verða minningardagur drukknaðra sjómanna. 1 því sambandi ættu allir landsmenn að geta sámeinað sig um mikla hug- Vélstjórastéttin. Svo sem kunnugt er, hefir sjómennska verið stunduð hér síðan landið byggðizt, en ýmsar greinar sjómannastéttarinnar eru aftur á móti ungar og þar á meðal er vélstjórastéttin. Síðan um aldamót hafa mjög breytzt lifnað- arhættir og atvinnuskilyrði þjóðar vorrar. Vél- arnar hafa hér eins og annarsstaðar rutt sér til rúms og gerbreytt starfsaðferðum. Orkuver og iðnaðarfyrirtæki hafa risið upp og er nú varla svo bátur eða skip, að ekki sé knúið áfram með vélum. Eigi mun það með vissu vitað, hver hafi ver- ið hinn fyrsti starfandi vélstjóri hérlendra manna; þó mun mega telja með þeim fyrstu eða fyrstan Guðmund heitinn Viborg, fæddan 3. júní 1866 að Svanvík í Reykjarfirði vestra. Hann vann á vélaverkstæði í Álftafirði við ísa- fjarðardjúp á árunum 1890—94, en þá varð hann yfirvélstjóri á ,,Solid“ frá ísafirði og „Ás- geir litla“, eign Ásgeirs Ásgeirssonar kaup- manns á ísafirði, og enn síðar á gufubátnum „Hvítá“ frá Hvítárvöllum í Borgarfirði, eign þýzks baróns, er átti Hvítárvellina um eitt skeið. Mun Guðmundur hafa starfað annað veif- ið sem vélstjóri fram á árið 1910, að hann hætti því starfi og stundaði gullsmíði í Reykjavík eftir það. Næstir Guðmundi Viborg voru starfandi vél- stjórar þeir Guðbjartur Guðbjartsson, sem byrj- aði 1895, nú starfandi sem 1. vélstjóri á varð- skipum ríkisins; Ólafur Jónsson 1897, nú bóndi mynd, en hún er sú: að vinna að því með ráð- um og dáð, að hér í höfuðstað landsins verði reistur veglegur allsherjar minnisvarði yfir drukknaða sjómenn. Slíkur minnisvarði myndi hafa stórkostlegt uppeldislegt gildi og verða til uppörfunar fyrir íslenzkan æskulýð, sem talandi tákn þess, að þjóðin kynni að meta að verðleik- um alla þá, sem látið hafa lífið í hinni hörðu atvinnubaráttu, svo þjóðin gæti lifað menning- arlífi í landinu. Henry Hálfdansson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.