Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Qupperneq 46

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Qupperneq 46
22 SJOiM ANNADAGSBLAöIÐ áhaldasmiður, en smiðirnir gátu komið því til leiðar, að hann fékk ekki leyfi yfirvaldanna til þess. Urðu honum þetta sár vonbrigði, sem von- legt var, en nú má segja, að forsjónin tæki í taumana, því að einmitt þessi mótspyrna smið- anna í Glasgow varð til þess að skapa honum aðstöðu til að geta byrjað á sínu mikla lífs- starfi. James hafði verið fenginn til þess að gera við nokkur áhöld fyrir háskólann í Glasgow, og varð það til þess, að hann fékk að setjast að í húsakynnum háskólans, en það gátu smið- irnir ekki ráðið við. Þar kom hann sér upp vinnustofu og búð og vann nú að áhaldasmíði og viðgerðum. Hann fékk aðgang að bókasafni skólans, sem hann notaði óspart, og komst í kynni við marga prófessorana og stúdenta, sem heimsóttu hann oft í vinnustofuna og ræddu við hinn fróða smið um ýmis iðnfræðileg mál- efni. James Watt hafði mikið gagn af kunning- skap sínum við þessa menn, og höfðu sumir þeirra mikil áhrif á lífsstarf hans; meðal þeirra má nefna vísindamanninn, prófessor dr. Joseph 'Black, sem meðal annars lagði grundvöllinn að þekkingu manna á þeim hita, sem bindst við bræðslu íss og uppgufun vatns, og stúdentinn John Robison, sem fyrstur vakti áhuga Watts fyrir eimvélinni. Um hina fyrstu heimsókn sína í vinnustofu Watts segir Robison á þessa leið: „Þegar ég var búinn að skoða hin vel gerðu áhöld, fór ég að tala við eiganda vinnustofunnar. Ég bjóst við að hitta smið, en hitti vísindamann. Ég var svo barnalegur, að álíta mig vel að mér í uppá- halds fræðigrein minni (stærðfræði og fræði- legri mekanik) og varð forviða, er ég komst að raun um, að herra Watt var miklu lærðari en ég í þessum greinum, en hinn mikli áhugi hans á þessum efnum gerði honum kleift að tala við mig og aðra um þessa hluti“. Veturinn 1763—1764 fékk háskólinn James Watt gamla fyrirmynd af eimvél Newcomens til viðgerðar, og átti hann að gera hana svo úr garði, að hún væri nothæf. Hann byrjaði þegar á viðgerðinni, en komst brátt að raun um, að þrátt fyrir það, að ketillinn virtist nógu stór í hlutfalli við strokkinn, gat hann samt ekki framleitt nógan eim til þess að knýja vélina, jafnvel ekki örfá bulluslög, og að ótrúlega mik- ið kælivatn þurfti, til þess að hægt væri að halda vélinni gangandi. Þessar athuganir leiddu til þess, að Watt byrjaði nú að gera reglubundnar tilraunir og notaði til þess stóran strokk, er hann smíðaði úr tré; en hér fór á sömu leið; eimeyðslan var óhemju mikil, og stafaði það mest af því, að eimurinn þéttist svo ört, er í strokkinn kom, og ef notað var meira kælivatn, til þess að fá meira tóm, jókst eimeyðslan til muna. Til þess að verða nokkurs vísari um orsakir þessarar miklu eimeyðslu, gerði Watt ýmsar tilraunir með eiminn með mismunandi þrýstingi, allt niður í undirþrýsting og upp í 1,7 Atm. yfirþrýsting. Fyrst um sinn var það þó einkum „metningshitastigið", sem hann rannsakaði, og koma þær rannsóknir hans merkilega vel heim við þær rannsóknir og mælingar, sem Regnault gerði, um það bil 80 árum síðar. Watt fann það með þessum rannsóknum, að hann gat ekki framleitt mikið tóm, nema með því að kæla strokkinn mikið, en komst jafn- framt að raun um, að eimeyðslan, sem þurfti til þess, að hita strokkinn aftur upp í það hita- stig, sem eimurinn átti að vinna með í honum, var of mikil í hlutfalli við það afl, sem tómið framleiddi. Þessu næst gerði Watt nokkurar rannsóknir til þess að ákveða eðlisrúmtak eimsins og hita- magn það, sem þarf til þess að eima vatn. Þetta hvorttveggja fann hann nokkurn veginn rétt. Jafnframt því sem Watt gerði þessar rann- sóknir, mældi hann eimeyðslu Newcomens vél- arinnar og komst að þeirri niðurstöðu, að rúm- tak eimsins, sem veitt var í strokkinn, væri 3 —4 sinnum stærra en rúmtak strokksins sjálfs; með öðrum orðum: til þess að hita strokkinn upp í hitastig vinnueimsins þurfti að eyða eimi, sem var að rúmmáli 2—3 sinnum stærri en rúm- tak vinnustrokksins, og allur sá hiti, sem hann innihélt, tapaðist alveg. Með öllum þessum athugunum komst Watt að þeirri niðurstöðu, að ómögulegt væri að nota strokkinn bæði fyrir vinnustrokk og eimþétti,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.