Sjómannadagsblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 54
Sjómannadagurinn í
Reykjavík 1976
Sjómannadagurinn 1976 var hald-
inn hátíðlegur í 39. sinni hinn 13.
júní. í Reykjavík voru borgarbúar
minntir á daginn með því að kl.
0800 voru fánar dregnir að húni á
skipum í höfninni, og við Hrafnistu
myndaðist sannkölluð fánaborg,
enda margar fánastengur reistar þar
í tilefni dagsins. Þá blöktu fán-
ar við hún víða í borginni. Veður
var hið besta NA-gola og sólskin,
en á austurhimni mátti sjá skýja-
bakka sem boðuðu okkur skúrir
sem og urðu seinni part dagsins.
Kl. 10.00 lék Lúðrasveit Reykja-
víkur létt lög við Hrafnistu, þar
sem margt manna var saman komið.
Kl. 11.00 hófst sjómannamessa í
Dómkirkjunni, séra Þórir Stephen-
sen minntist 19 sjómanna sem
Bekkur þeirra sem heiðraSir voru: F. v. Magnús Guðmundsson vélstj. og (rú, Berent Svelnsson
loftsk.maður hjá Landhelgisgæslunni, Tryggvi Helgason form. Sjómannafélags Eyjafjarðar (gull-
kross), dóttir Jóns Sigurðssonar form. S.S.I., þá eiginkona Guðmundar E. Einarssonar bryta,
Jón Sigurðsson form. Sjómannasambands fslands (gullkross), og Jón Eiriksson skipstjóri.
Þulur og kynnir dagsins: Anton Nikulásson.
drukknað höfðu frá síðasta sjó-
mannadegi. A meðan séra Þórir
Stephensen minntist þeirra sem
drukknað höfðu, lögðu tvær sjó-
mannsekkjur blómsveig á leiði
óþekkta sjómannsins í Fossvogs-
kirkjugarði.
Kl. 13.30 hófust hátíðahöldin í
Nauthólsvík með leik Lúðrasveitar
Reykjavíkur. Kl. 14.00 var mynduð
fánaborg með fánum stéttafélaga
sjómanna, íslenskum fánum, og há-
tíðin sett. Ávörp fluttu: Matthías
Bjarnason sjávarútvegsráðherra f.h.
44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ