Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 13
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
13
hafði gerst skipstjóri á Kára Söl-
mundarsyni. Við vorum á síld um
sumarið en fórum svo á reknet um
haustið.
En síðla hausts beindu forlögin
mér á ný til Landhelgisgæslunnar og
nú á Sæbjörgu með Jóni heitnum
Jónssyni skipherra. Féll þar með
einn vetur úr í námi mínu við Stýri-
mannaskólann.
En haustið 1952 tók ég aftur til við
námið og settist nú í Farmannadeild
og lauk henni um vorið 1953. Að því
búnu lá leiðin vitaskuld rakleitt aftur
til Gæslunnar þar sem ég átti eftir að
starfa óslitið allan minn feril eftir
þetta. Var ég um sumarið hjá Þórarni
Björnssyni á gamla Ægi. Varðskipin
gegndu hlutverki fiskirannsókna-
skipa og fiskileitar um þessar mundir
þegar þörf gerðist og þá ekki síst Æg-
ir og var skipið bundið við síldarleit
þetta sumar. Ég undi mér vel um
íslenskur landhelgisbrjótur hefur breitt yfir nafn og númer þegar flugvél Landhelgis-
gœslunnar ber óvœnt að!
Áhöfnin á Óðni þann 6. október 1972. Fremri röð frá vinstri: Valgeir Ólafsson bryti, Kristján Jónsson 3. stýrimaður, Sigurjón I.
Sigurjónsson 2. stýrimaður, Sigurjón Hannesson 1. stýrimaður, Sigurður P. Árnason skipherra, Bjarni Magnússon 1. vélstjóri,
Halldór Hallfreðsson 2. vélstjóri, Sveinbjörn Erlingsson 3. vélstjóri, Haraldur Jóhannesson 4. vélstjóri. - Aftari röð frá vinstri:
Kristinn Bjarnason viðvaningur, Hörður Sigurgeirsson vikadrengur, Guðmundur Haraldsson vikadrengur, Haukur D. Grímsson
dagmaður í vél, Rafn Guðmundsson háseti, Guðni Sigurmundsson háseti, Finnbogi Birgisson viðvaningur, Valgarður Magnússon
háseti, Ásgeir Porvaldsson smyrjari, Atli Örvar smyrjari, Þóroddur Gunnarsson liáseti, Gunnar Sigurðsson aðstoðarvélstjóri,
Ragnar Agnarsson háseti, Geir Gunnarsson háseti, Sigurpáll Steinþórsson bátsmaður, Gústaf Kristjánsson matsveinn. (Myndina tók
Valdimar Jónsson loftskeytamaður).