Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Síða 19
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
19
vestur á Firði að nýju á fyrri slóðir.
Man ég að á leiðinni, eða þann 31.
mars, tókum við sjúkling frá Mjólk-
árvirkjun og héldum með hann til
Patreksfjarðar. Þaðan lá leiðin svo
suður undir Jökul til þess að hjálpa
netabátum sem kvartað höfðu undan
ágangi frá breskum togurum. Til
Reykjavíkur var svo komið eftir há-
degið þann 2. apríl.
Þetta held ég að sýni að það er oft í
mörg horn að Iíta hjá varðskips-
mönnum.“
Kysi mér sama starf aftur
„Þegar ég lít yfir farinn veg þá tel
ég mig hafa verið gæfumann í starfi
og ég held að ég mundi hiklaust velja
mér starf varðskipsmannsins aftur.
En þá er það aðeins eitt sem ég ósk-
aði að ég hefði til brunns að bera og
það er að ég byggi að þeirri reynslu í
upphafi ferils míns sem ég hafði öðl-
ast þegar ég hætti. Stundum hef ég
sagt við kunningja mína að ég vildi
ekki vera orðinn ungur aftur nema
þá að ég fengi að taka reynsluna með
mér.
Það hafa skipst á skin og skúrir,
birtu og gleði slær yfir sumt en svo
eru þessar erfiðu stundir og minnist
ég þess þá þegar við þurftum að taka
líkin af drengjunum af honum Elliða
um borð, en þau fundum við í
gúmmíbát undir Jökli árið 1963. Öðr-
um af skipshöfninni hafði verið
bjargað.
En þetta verðum við að láta nægja,
því ætti ég að segja frá öllu því sem
við hefur borið á mínum ferli mundi
„Sjómannadagsblaðið“ ekki nægja
til þess. Nei, ég hef ekki í hyggju að
rita æviminningar mínar, þótt sumt
hafi ég punktað niður handa nánustu
ættmennum. En það vil ég taka fram
að allan minn feril hjá Landhelgis-
gæslunni átti ég því láni að fagna að
starfa með úrvalsmönnum og það
verður seint fullþakkað.“
AM
Tjaldur II SH 370
Eldborg RE 22
Kristbjörg VE 70
Förde junior
Guðrún Hlín BA 122
Óskum
útgerðum og
áhöfnum
ofangreindra
skipa til
hamingju með
frábæran
árangurá
línuveiðum.
& CMlJIlfFÍU
Skipin nota 11,5 mm
djúpsjávarlínu
og 4ra þátta
sigumaglalínur frá
A/S Fiskevegn.
VEIÐARFÆRASALAN
DÍMON ehf.
Skútuvogur 12E, 104 Reykjavík, Sími 588 1040, Fax 588 1041