Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 38
Draumgeisli.
Ortur af síra Jóni Daðasyni í Arnarbæli
1642-1676.
i. Handrlt.
Kvæði þetta er til heilt e'ða í brotum i alls 12 hand-
ritum, sem öll eru óháð hvert öðru. Mun kvæðið alls stað-
ar ritað eftir minni einhvers eldra fólks eða eftir eldri
uppskriftum, sem þannig voru einnig til komnar. Elzta
uppskriftin er frá lokum 18. aldar, en hinar ailar frá 19.
öld. Orðamunur er talsverður í þeim öllum, eins og við
er að húast, og vísnaröðin meira og minna mistnunandi.
Upphaflega mun kvæðið 15 erindi, að þvi er ráða má af
handritunum. Eru alls 5 handrit, sem hafa kvæðið heilt,
Þau eru þessi:
1. Lbs. 1052, Svo, skrifað að mestu 1791. Þetta er elzta
og bezta handritið, og er kvæðið þvi prentað hér eftir því.
Til munnlegrar heimildar bendir m. a. leshátturinn gefa
i 12° fyrir gcra, sem rímið heimtar. — 2. IB. 179, 8vo, skrif-
að á 19. öld, orðamunur í minna lagi, en visnaröð önnur:
1, 2, 3, 5, 4, 6, 8, 7, 9, 11, 10, 13, 14, 12, 15. — 3. Lbs. 378,
Svo, „skrifað af Brynjólfi Jónssyni frá Minna-Núpi um
1870“, „eftir blöðum úr Flóa“. Visnaröð sú sama sem í
ÍB. 179, en orðamunur milli þeirra innbyrðis sýnir, þótt
cigi sé allmikill, að ekki eru bein tengsl þeirra á milli. —-
4. Lbs. 610, 4to, komið „frá síra Páli Ingimundarsyni í
Gaulverjabæ, uppskrifað af Guðmundi Sigurðssyni sama
staðar". Vísnaröð: 1, 2, 6, 3, 4, 5, 7, 8, 11, 9, 10, 12, 14,
13, 15. — 5. Lbs. 14SS, 8vo, skrifað af Brynjólfi Jónssyni
frá Minna-Núpi eftir Steinunni Hannesdóttur húsfrú á
Bildsfelli í Grafningi. Vísnaröð: 1, 2, 3, 6, 5, 4, 7, 8, 9,
10, 11, 12, 14, 13, 15.