Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 95
93
Núpi, er líklegra, að hann hefÖi fari'ð inn með Þjórsá
a<5 vestan. Hafi hann strokið frá Barkarstöðum, lá
leið hans inn með Þjórsá að austan, og þá var Ey-
vindarver á leið hans. Það er þvi sennilegra, að hest-
urinn hafi strokið frá Barkarstöðum vorið 1774- Vet-
urinni 1775 hefir Eyvindur verið í Herðubreiðarlind-
um. Þá um vorið hefir Eyvindur verið útilegumað-
ur 22 ár, ef miðað er við, að hann hafi lagzt úl
I753> og 1 sekt 28 ár. Hefir víst enginn maður á
Islandi verið eins lengi útilegumaður og í sekt seni
Eyvindur, án þess að komast undir dóm.
Að líkindum hafa þau Eyvindur og Halla úr þessu
íarið vestur á fornar slóðir. Sagt er, að síra Helgi
Einarsson lögréttumanns í Þrándarholti, Hafliðason-
ar prests í Hrepphólum, hafi verið þeim góður og
hjálpsamur. Hann var prestur á Stað í Aðalvík 1776
til 1779. Með fullri vissu er ekki hægt að segja um
dánarár Eyvindar og Höllu, en dáin eru þau bæði
fyrir reykjarmóðuharðindin 1783. Blaðið Islending-
ur, gefið út árið 1861, segir, að þau hafi verið
jörðuð að Staðarkirkju, og það sé haft eftir göml-
U!n manni, sem mundi Höllu, þá að vísu barn að
aldri. Kunnugir menn segja, að leiði Eyvindar sé
fy rir vestan túnið á Hrafnsfjarðareyri. Á því sé
steinn, sem letrað sé á: Hér hvílir Fjalla-Eyvindur
Jónsson.
Niðjar Fjalla-Eyvindar.
Sú sögn hefir allt til þessa dags lifað í Hruna-
niannahreppi, að Eyvindur hafi átt son, er hann var
1 föðurgarði, með stúlku, sem Guðrún hét, til heim-
iHs á Fossi, næsta bæ við Hlíð, þar sem Eyvindur
var í uppvexti. Það fylgir þessari sögu, að Guðrún
þessi hafi flúið frá Fossi fram í Þykkvabæ í Holta-
hreppi, til Alleifar, systur Eyvindar, og alið þar son,