Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 90
88
ÞórÖardóttir, sem Gottskálksannáll segir, að lát-
izt hafi 1375, og hefir hún veri'ð dóttir Þórðar Kol-
beinssonar Auðkýlings, en systir Árna hirðstjóra,
sem þeir Smiður hirðstjóri Andrésson og Jón skrá-
veifa Guttormsson lögmaður létu höggva 18. júní
13Ó11). En móðir Árna og Kristinar hefir veri'ð
Iialldóra Þorvaldsdóttir, Geirssonar, úr Lönguhlí'ð.
Þarinig komst Lönguhlíð í eigu Þorsteins lögmanns,
auk Bræðratungu og fleiri jarða syðra. Frá Krist-
ínu þessari er komið nafn þeirra Akra-Kristínar
Þorsteinsdóttur, Ólafssonar helmings, Þorsteinsson-
ar lögmanns á Urðum, og Vatnsfjarðar-Kristínar,
dótturdóttur Þorsteins á Urðum, en móður Björns
ríka.
Þorsteinn lögmaður átti fjölda barna, og eru þessi
kunn af samtíða ritum: 1. Árni prestur nyrðra.
2. Arnfinnur hirðstjóri, er bjó á Urðum, faðir Eyj-
ólfs yngra þar (d. 1476), föður Guðna á Urðum
o. fl. 3. Eyjólfur „stuttur“ (á Urðum) d. 1411,
faðir Ólafs ,,Stuttssonar“. 4. Guðmundur, faðir
Ólafs, Sumarliða og Þorsteins sýslumanns nyrðra.
5. Loftur prestur í Fíflholti, svo nyrðra. 6. Markús
í Skógum, er veginn var 1390, faðir þeirra Arn-
bjarnar, Gunnars og Magnúsar o. fl. 7. Ólafur
bóndi „helmingur" í Fellsmúla syðra (d. 1380), fað-
1) Annálar; sbr. J. Þ.: Ártíðaskrár, bls. 163—164. —
Bræður Árna og Kristínar hafa sennilega verið þeir Arnór
Þórðarson sýslumaður milli Þjórsár og Lómagnúpssands,
sem Jón Hallsson (úr Dal undir Eyjafjöllum) fangaði
1342 og lét fóthöggva og fingurhöggva, faðir Árna, sem
höggvinn var „fyrir austan" (1365) og Björn Þórðarson,
sem féll i Grundarbardaga 8. júlí 1361 úr liði Norðlend-
inga, — kannske faðir Einars, föður Árna Dalskeggs, —
& Loptur á Svalbarði, bóndi Ásu Eiriksdóttur rika,
Magnússonar.