Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 80
78
og fallast ættíræSingar almennt á ættfærslu þessa,
sem bæÖi kemur heim viÖ nöfnin og tímataliÖ, og
auk þess hefir þessi Eyjólfur Arnfinnsson, sem
átti Ólöfu, nána frændkonu Jörundar biskups, ver-
iÖ kunnur maÖur á sinum tíma og ætt hans, þar
sem höfundi biskupaættanna þykir ekki þurfa að
rekja framar ætt hans en aÖ greina frá föðurnafn-
inu, til þess að þá könnuoust samtiðafmenn höf-
undarins við Eyjólf þennan. Að hann átti norð-
lenzka konu, bendir á, að hann hafi búið nyrðra,
og auk þess kemur hann, fyrstur leikmann-a, sem
vottur við Auðbrekkubréf í Hörgárdal frá því um
1355*)-
Móðir Ólöfar Björnsdóttur var Arnfríður Böð-
varsdóttir frá Breiðavaði (í Húnavatnsþingi) cg
Valgerðar Þorsteinsdóttur, systur Jörundar biskups
á Hólum. Um framætt Björns Þorkelssonar er lití
kunnugt. En vegna þess, að Þorsteinn lögmaður
Eyjólfsson og Arnfinnur, sonur hans, áttu jarðir
i Fljótum, t. d. átti Þorsteinn Helgustaði, Hamar
og Bakka1 2) þar, en Arnfinnur Lund og Nefstaði3,
þykir líklegt, að Björn Þorkelsson (ættfaðir þeirra)
sé sá' Fljáta-Björn, sem veginn var 1309, það ár,
er Kolbeinn Auðkýlingur (jarl) var veginn (Ann-
álar). Máske Björn hafi verið félagi Kolbeins, en
Þorkell, faðir Björns, föður Ólöfar, gæti verið son-
ur Ásgrims prests að Barði, er veginn var 18. maí
1) D.í. IV, nr. 482, bls. 435—436; sbr. ritgerÖ mína
í Blöndu VI, 4. hefti (1939), bls. 386. Bréfið er i D.Í.,
IV, rangt árfært: „um 1430—c. 1440“, en er nærri 100
árum eldra.
2) D.í. III, nr. 336, bls. 391.
3) D.í. IV, nr. 358, bls. 296—297.