Eimreiðin - 01.01.1928, Side 26
6
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
nokkrum Kínverja geti verið um þær þjóðir gefið. Auk þess
eiga Japanar hagsmuna að gæta í Manshúríu, hinu mikla
landflæmi á norðurtakmörkum Kína. Þetta frjósama land líta
bæði Japanar og Rússar girndarauga, og líklegt er, að
hvorki Japanar eða Rússar láti þar hlut sinn fyrir hinum, án
þess að láta vopnin skera úr. Ahrif Rússa í Kína hafa orðið
Japönum þyrnir í augum, og telja menn ekki ólíklegt, að bráð-
lega dragi til vopnaviðsldfta milli þessara tveggja þjóða um
yfirráðin í Manshúríu.
Takmarkið, sem vakir fyrir frelsisvinunum kínversku, er að
sameina hið víðlenda Kínaveldi undir einni innlendri stjórn.
Flestir líta svo á, að því aðeins verði þessu takmarki náð, að
hin einstöku fylki landsins myndi eitt allsherjarbandalag — nV
»Bandaríki«. En Kínverjar eru eins fjarri því að ná þessu
takmarki eins og fyrir ári síðan.
I Rússlandi hefur verið allróstusamt árið sem
RúsUsrae oq leið’ enda bótt stjórnin virðist föst í sessi.
Englendinga. Eftir því sem dregið hefur úr vonum sam-
eignarsinna um heimsbyltingu, hafa þeir snúið
sér að því með meira kappi en áður, að bæta ástandið heima fvrir
í landinu. Stjórnin hefur nú sumstaðar fengið bændum jarðirnar
til eignar, og afleiðingin af því er sú, að fjölmenn stétt óðals-
bænda er að myndast. Hinir róttækari meðal sameignarsinna
telja stjórnina með þessu og fleiru hafa horfið frá hugsjon
sameignarstefnunnar, og hefur risið út af þessu deila mik'1
innan flokksins. Hefur þessari deilu lokið þannig, að TrotskY
og nokkrir aðrir framsæknustu sameignarmenn hafa verið úti*
lokaðir frá því, að geta haft bein stjórnmálaáhrif í landinu.
Rússneska stjórnin hefur sýnt það í ýmsu, svo sem með þátt'
töku sinni í afvopnunarfundi Þjóðabandalagsins í Genf í haust,
að hún vill gæta allrar varúðar, bæði inn á við og út á vio,
og undirbúa friðsamleg verzlunarviðskifti við aðrar þjóðir
mejr en verið hefur.
í utanríkismálum Rússa hefur gerst tvent, sem mikla at-
hygli hefur vakið, stuðningur þeirra við Kínverja, sem þeSar
er um getið, og rimma sú hin mikla, sem varð milli Breta oS
Rússa út af húsrannsókn þeirri, sem Bretastjórn lét Sera
verzlunarskrifstofum Rússa í Lundúnum, í maímánuði síðas -
liðnum, til þess að komast fyrir um undirróður þeirra meöa
verkalýðs í Englandi. Þó að árangurinn yrði minni af þessar
rannsókn en til var ætlast, töldu Bretar sig samt fá w.e,
henni ýrns gögn fyrir því, að Rússar héldu uppi undirróðri
Englandi, og er illur kurr í stórveldum þessum hvort í annar
garð, þótt nokkurnveginn haldist friðurinn á yfirborðw