Eimreiðin - 01.01.1928, Qupperneq 30
10
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
til þess að sjá við þessum óvini. Ráðið er það, að leiðbeina
flugvélunum með rafsegulbylgjum frá loftskeytastöðvum (radio-
goniometry). Talið er líklegt, að þessi nýju vísindi muni út-
rýma allri hættu af völdum þoku, og geti svo farið áður langt
um líði, að hlutverk flugstjóranna verði það eitt að stýra hina
gefnu leið, þótt þoka sé á og dimmviðri, eða með öðrum
orðum svipað eins og hlutverk bifreiðarstjóra er nú. En skamt
eru þessar tilraunir á veg komnar enn þá.
Annars dreymir sérfræðinga í flugvísindum hina ótrúlegustu
drauma um framtíð flugsins. Meðal annars er talað um að
taka upp lengdarflug svo sem nokkrar mílur frá jörðu, með
því að þar sé loftmótstaðan sama sem engin og geti því fluS'
hraðinn orðið margfaldur við það sem nú er. En auðvitað
yrði þá að flytja farþegana í Ioftþéttum flugum og flytja með
nægilegt súrefni til öndunar, því enginn mundi annars lifa 1
því lofti eða réttara sagt loftleysi, sem fyrir er í slíkri hæð.
Enn hefur mönnum ekki tekist að fljúga í meira en nálega l4
kílómetra hæð, en talið að varla sé líft að fljúga nema í 6-7"
7 km. hæð án sérstaks útbúnaðar. Má því ætla, að þessir
draumar eigi nokkuð langt í land með að rætast.
F. « , Annað furðuverk nútíðarvísindanna, sem koma
mun að miklu haldi, er hin svo nefnda hro-
sýn (television). Það er skozkur vísindamaður, John L. 3a>rcl
að nafni, sem talinn er eiga mestan þátt í því, að menn eru
nú að komast upp á »að sjá í gegn um holt og hæðir«. Fm*'
sýn er stundum blandað saman við myndsímun (phototele-
graphy), en þetta tvent er sitt hvað. Myndsímun er nú kom'
in á svo fullkomið stig, að hægt er að myndsíma heirnsálfarm3
á milii. Þannig hefur verið myndsímað milli Berlínar °9
Buenos-Aires í Suður Ameríku, og peningaávísanir er nU
farið að senda með þessari aðferð í stað þess að simrita þ^r
eða senda í pósti. En firðsýn er í því fólgin, að fly(ia.
framkalla í fjarlægð atburði samstundis og þeir gerast. I lan
úarmánuði 1926 sannaði Baird fyrir meðlimum KonungmSa
vísindafélagsins brezka, að firðsýn væri veruleiki, og siOa
hefur honum tekist að fullkomna tilraunir sínar mjög.
sjónstreymistöð sinni í Lundúnum hefur honum tekist að sen
og framkalla á öðrum stað lifandi andlit þess, sem »si
fyrir«, með öllum svipbrigðum þess, réttum hlutföllum 1)°
og skugga og nákvæmu látbragði. Baird hafði verið að ga
tilraunir með »talandi kvikmyndir« þegar honum hugkvaem 1
fyrst, að hægt mundi að firðsýna. Fyrsta stigið í þessU ,
tilraunum hans var að senda þráðlaust skugga af hlutum^.
hreyfingu. Tveir aðrir hugvitsmenn, Bandaríkjamaðurinn 6.