Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1929, Page 60

Eimreiðin - 01.04.1929, Page 60
148 SKINNKLÆÐI eimreiðin eða hleypt niður, og svo hefur það verið, sbr. „girða sig“ OQ „hleypa brókum“. Ennfremur má nefna hin gömlu handamál, sem ekki hafa fylgt svo öðrum hlutum alt til þessa tíma, og loks hversu alt er fornlegt og ramíslenzkt við tilbúning klæð- anna. Alt þetta þykir mér benda all-sterklega á, að við Is- lendingar eigum í skinnklæðum einn hinn elzta þjóðbúning á Norðurlöndum. Væri æskilegt, að fræðimenn rannsökuðu þetta nánar, því hér er að eins um bending og líkur að ræða. En svo mikið er víst, að í þessum klæðum hefur mikill hluti íslenzkra alþýðumanna unnið að öðrum aðalatvinnuveg íslenzku þjóðarinnar frá fornöld og fram um fyrsta fjórðung þessarar aldar og að nokkru leyti enn í dag. Er hann því að vissu leyti einskonar þjóðbúningur, sem í rauninni fer hverjum réttvöxnum manni vel og karlmannlega, sé stakkur- inn sniðinn eftir vexti og klæðin vel gerð;1) og einkennilegt er það, að yfir þessum klæðum hvílir enn í dag einskonar helgi — mér liggur við að segja fornhelgi. Kvað svo að þessu, að alþýða manna taldi alskinnklæddan mann friðhelgan svo lengi sem hann væri klæddur skinnklæðum, og enn bera menn ósjálfráða virðingu fyrir skinnklæddum manni. Vera má, að helgitilfinning þessi stafi að nokkru af hinu nauðsynlega, alvarlega og hættulega starfi, er menn gegna klæddir fötum þessum, því í þessum klæðum hefur margur hraustur drengur unnið fyrir sér og sínum og tekið þau handtök, er lengi munu í minnum höfð og bjargað hafa lífi bæði þeirra sjálfra og annara, í viðureigninni við ofviðri og stórsjó, oft í blind- hríðar gaddbyljum og kolsvörtu myrkri heimskautabaugs skammdegisnæturinnar. En engir eru til frásagna um þrekvirki hinna mörgu, í hinzta stríðinu, er þeir háðu við æðisgengnar höfuðskepnurnar áður en þeir „meö sveitta kinn, supu hinn kalda bikarinn", og skinnklæðin urðu þeim líkklæði. Oddur Oddsson. 1) ÞaÖ væri vel við eigandi, að sýnd væru vel gerð skinnklæði á al- skinnklæddum, drengilegum íslendingum við Þingvallavatn á Alþingis- hátiðinni 1930.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.