Eimreiðin - 01.04.1929, Blaðsíða 82
170
FLÓTTINN ÚR KVENNABÚRINU
eimreidin
urlöndum að giftast Austurlandabúa, og réð hann mér ein-
dregið frá því að leggja út í þetta. Ég taldi hann alt of var-
færinn í þessu máli, og sá faðir minn að lokum, að hann
mundi engu fá um þokað, veitti samþykki sitt til ráðahagsins,
þó að honum væri það mjög á móti skapi, og sendi mér fjár-
upphæð þá, er ég hafði beðið hann um, til þess að Asim
gæti haldið áfram námi og við stofnað okkar eigið heimili.
Hinn 5. ágúst 1925 varð ég eiginkona Asim Khans.
» *
♦
Nokkru eftir þetta varð breyting á skipun afgönsku sendi-
6veitarinnar í Berlín. Ghulam Siddik sendiherra var kvaddur
heim, og Ahmed Ali var kjörinn eftirmaður hans. Nýi sendi-
herrann virtist hafa átt við einhverja örðugleika að stríða.
Honum virtist vera það áhugamál, að fá sér þá eina sam-
verkamenn, sem voru vel kunnugir landi því, er hann átti að
starfa í. Að minsta kosti bauð hann Asim að ganga aftur í
þjónustu stjórnarinnar og gæti hann jafnframt haldið áfram
námi sínu og lokið því. Asim tók þessu.
Ég var því næst boðuð á skrifstofu sendiherrans, og hugð-
ist hann að jafna málin við mig.
Ekki get ég sagt, að hann tæki mér ástúðlega, er ég kom
á skrifstofuna. Eftir dálítinn formála spurði hann mig, hve
mikið fé ég hefði greitt fyrir Asim Khan þann tíma, sem hann
hefði ekki verið í þjónustu stjórnarinnar. Hann leyfði sér að
bjóðast til að greiða mér þá upphæð strax, ef ég vildi skilja
við manninn minn. Auðvitað hafnaði ég boðinu.
En þá sneri hann fljótt við blaðinu. Nú varð hann mjúkur
á manninn, og háll eins og áll reyndi hann að draga sem
mest úr þessum orðum sínum, og þegar ég skildi við hann,
varð ég að viðurkenna, að hann væri mjög kurteis maður.
Og þó að þessi fyrstu kynni mín af sendiherranum væru mér
ógeðfeld, urðu síðari heimsóknir mínar á sendisveitarstöðinm
viðunanlegri.
Mesti sómi, sem Afgani getur sýnt konu, sem hann um'
gengst, er að kalla hana »systur« sína. Og ég varð þeirrar
virðingar aðnjótandi að verða viðurkend »systir« sendiherrans-
Nú var eins og allar leiðir stæðu opnar fyrir Asim. OS-