Eimreiðin - 01.10.1934, Blaðsíða 61
eimreiðin SÁL OG SAGA Á ÍSLANDI OG í ARABÍU
387
skilningi, að ákveðið afbrigði manna, sem lífskjörin hafa mótað
og vér einmitt nefnum kyn, er gert að föstu hugtaki, sem
ekki getur tekið neinum breytingum, þegar það einu sinni er
til orðið. Orðið »kyn* er í stjórnmálaumræðum orðið að víg-
orði, sem — eins og vant er — þeir beita með mestum ofsa.
or sízt bera skyn á, hvað það merkir.
Þjóðernissinnar í Þýzkalandi hafa í hinum miklu umræðum
sínum um germanska kynið viljað finna mannfræðilega sönnun
fyrir réttmæti Qyðinga-andúðarinnar, eða öllu heldur fyrir
nauðsyn hennar. Hér skal ekki eytt tíma í það að rannsaka,
hvort grundvallarskoðun þeirra sé rétt eða röng, en hún er
sú, að bjarthærða, bláeyga kynið, er greinilegast kemur fram
á Norðurlöndum og þjóðernissinnarnir þýzku, með skáldlegri
•neðferð í líkingu við Tacitus, vilja gjarnan láta hafa verið
frumbyggja föðurlands síns, sé fullkomnasta manntegundin og
t>ví réttborin til að drottna yfir öllum öðrum. Hið germanska
hetjukyn hefur spilst af örlagaríkum áhrifum sunnan að, af að
blanda blóði við rómanskar og keltneskar þjóðir, þar næst af
kristindóminum, er bugaði hina hetjulegu, gunnreifu lífsskoðun,
°3 loks af Gyðingum, sem með auvirðilegri ásælni og lygð
e'9a að hafa gert loft alt lævi blandið. Eigi nú að endur-
I'fsa þetta forna hetjukyn, og eigi síðan »hið germanska eðli<
að hreinsa heiminn, eins og Hoffmann von Fallersleben
dfeymdi um í eldmóðugum söngvum sínum, þá verður að
fosna við það, sem útlent er; Gyðinga-andúðin er þjóðar-
lækning, sem ekki verður hjá komist.
Eitthvað á þessa lund hljóðar kenning þjóðernissinna. Gagn-
Vart henni er þá ekki einkisvert að geta sýnt fram á, að
bjarthærðir, bláevgir menn lengst norður frá, blóðhreinir full-
frúar þess kyns, er Þjóðverjar telja germanskt, hafa í líferni
°9 hugsunarhætti að mörgu líkst hinum dökkhærðu, svarteygu
s°num eyðimerkurinnar í Arabíu, óblönduðustu niðjum Semíta-
I'Vnsins. Og takist svo að sanna, að þessi líking á rót sína í
landseðli og lífskjörum þeim, sem þessir tveir kynstofnar hafa
fff við að búa, þá mun koma í ljós grunsamleg veila í kenn-
In9unni um kynið. Já, það þarf meira en misskilið vígorð til
að skýra sérkenni heilla kynþátta.
Þau tvö menningartímabil, sem vér ætlum að bera samán