Eimreiðin - 01.10.1934, Blaðsíða 74
400 BjARQRÁÐIN OQ BÆNDURNIR eimreiðiN
leiddi til þess, að bændur reyndu til þess að nota vélar í stað
vinnufólks og voru neyddir til þess. Þetta leiddi svo aftur til
þess, að fólki fækkaði í sveitunum og jók á atvinnuleysið í
bæjunum. Fyrir aldamótin var sveitafólkið full 85 °/o af þjóð-
inni. Nú er það um 43°/o.
2) l/erndartollar á innfluttum sveitaafurðum hafa víða verið
notaðir til þess að hækka verð þeirra og gera þannig sveita-
búskap arðsaman. Þýzkaland hefur lengi notað þetta ráð, oS
nú hafa Englendingar tekið það upp. Að sama brunni ber
takmörkun á innflutningi sveitaafurða, sem margir hafa gripið
til á síðustu árum. Þá hafa menn og gefið verðlaun fyrir út-
fluttar sveitaafurðir þegar útflutningur hætti að borga sis
(England, Holland). Að lokum hefur ríkið ábyrgst bændum
lágmarksverð fyrir sumar sveitaafurðir (hveiti o. fl.) og sett
það svo hátt, að bændur hafa mátt vel við una.
Það kann að vera að þessi ráð og þvílík séu óumflýjanleS
á krepputímum, og það í raun og veru sanngjarnt að bændur
beri ekki öllu minna úr býtum fyrir alt sitt strit en borgar-
búar, en sá mikli galli fylgir þeim, ef til langframa lætur, að
með þessum hætti verða bændur ómagar annara stétta, l'f®
af styrk frá þeim, ekki sízt bæjarbúum. Þessu fylgir °S
dýrtíð í bæjunum, sem ætíð verður óvinsæl, og bæjarbúar
eru meiri hluti landsmanna og þingmanna áður langt um
líður. Með þessum hætti verður sveitabúskapurinn í raun
og veru enginn heilbrigður atvinnuvegur, því til þess Þar^
hann að geta borið sig sjálfur og borgað skatta og skylduf
líkt og aðrir. Það er því hæpið að þessi ráð gefist vel Þl
langframa eða geti forðað sveitunum frá eyðingu, svo framar-
lega sem sjávaratvinnan ber sig betur. Menn vilja ætíð sitja
við þann eldinn, sem bezt brennur. Hinsvegar er það víst,
að sveitirnar eyðast, ef atvinnuvegurinn er ekki lífvænlegur-
Englendingar hafa tekið þá afstöðu til kreppufargansins
að gera búskapinn lífvænlegan, tryggja bændum sæmilegt verð
fyrir vörurnar. Þetta er bændum lífsskilyrði, segja þeir, meðau
svona stendur. Það skulu þeir fá, en fyrir skuldum sínum °S
öllu öðru verða þeir þá að sjá sjálfir.
3) íslendingar fundu það þjóðráð að létta skuldir baen a
með eftirgjöf nokkurs hluta af skuldunum og hinsvegar me