Eimreiðin - 01.10.1934, Qupperneq 85
ElMREIÐIN
PÉTURSKIRKJAN
411
árið 39 eftir Krists burð, gnæfir grönn og beinvaxin upp í
loftið. Árið 1586, í stjórnartíð Sixtusar páfa fimta, var hún
flutt og sett á mitt Péturstorgið, sem leiðarvísir fyrir pílagríma
°9 landfestasteinn fyrir Pétursskipið; hún er 25 metra hár
einsteinungur, með krossmarki efst.
Það er ef til vill ekki úr vegi að geta þess hér, að sagt
er að á meðan verið var að reisa steinsúluna á Péturs-
torginu, hafi verið svo stranglega bannað að mæla orð frá
vörum, að dauðahegning lá við, ef út af var brugðið. En
þrátt fyrir þessi fyrirmæli dirfðist þó ungmenni nokkurt að
þrjóta út af þessu, þar eð hann veitti því eftirtekt, að vegna
núningsins var byrjað að rjúka úr böndunum, og auðsætt var
að þau myndu brenna í sundur þá og þegar, en þá hefði
vitanlega fjöldi manna farist og steinsúlan sjálf brotnað í
þúsund mola. Þá hrópaði ungmennið: Vatn á böndin! Vatn
á böndin! og stofnaði þannig sínu eigin lífi í hættu, til þess
að bjarga öðrum. Refsingunni var nú samt sem áður ekki
Þeitt, en í stað þess var honum og ættingjum hans veitt í
launaskyni einkaleyfi til þess að selja pálma til kirknanna í
Rómaborg, og sagt er að alt til þessa dags haldist sá siður.
^r ekki að efa, að ættingjarnir hafi hagnast vel á þessari
ofdirfsku forföður síns.
Svo er gengið yfir torgið, upp breiðar tröppur úr fagur-
Sljáandi tígulsteini. Hjálmhvelfingin hverfur á bak við mikil-
úðga útjaðra framhliðarinnar. Súlurnar fyrir framan inngang-
inn verða stærri og stærri. Grindarhliðið er enn þá opið, og
nokkru innar er hurðin í hálfa gátt. Gengið er inn í kirkj-
Una, áfram inn í annan heim. Tign og mikilleiki eru fyrstu
áhrifin. Við sjónum blasir óhemju víðátta, að vísu takmörkuð
af bogum, súlum og fjarlægum veggjum. En bogar, súlur og
ve92ir hverfa næstum því undir þunglamalegri skykkju úr
Ýmiskonar höggmyndum og marmara-steintiglaskrauti.
Hátt, hátt uppi í hvelfingunni eru bogar og aftur hvelfingar.
^íða sézt inn í þögular hliðar kapellunnar, með blaktandi ljósum.
Langt frammi, uppi í kirkjunni, hellist gylt sólarlagsljósið
°iður frá gluggum hvelfingarinnar, sem er þakin risavöxnu
steintíglaskrauti með gyltum undirlit, sveipuð töfrafegurð og
Sullljóma.