Eimreiðin - 01.10.1934, Qupperneq 116
442
RITSJÁ
EIMREIÐIN
öðrum hætli. Fyrir því er þetta safn ekki stærra en það er“. Ritstörf
hans hafa mestmegnis orðið í formi hins óbundna stíls. Sem sagna- oS
leikritahöfundur hefur hann unnið sér heiðurssess á bekk íslenzkra skálda
fyrir löngu. En í rauninni er hann jafnvígur á bundið mál og óbundið,
þótt fyrra skáldskaparformið hafi snemma þokað fyrir hinu síðara.
Þetta Iitla ljóðakver, sem frá útgefandans hendi er prýðilega úr Sar®‘
gert, flytur ekkert nema góðan skáldskap og göfgandi, enda segist höf. 1
formálanum hafa varast að láta nokkuð það fljóta með, sem telja mst*1
miður vingjarnlegt í garð annara eða til ófrægingar mönnum eða mál'
efnum, jafnvel þótt til væri í fórum hans eitlhvað slíkt. Sum ljóðanna
eru fyrir löngu komin svo að segja á ailra varir undir vinsælum sönS'
lögum, svo sem Vornæturferð og kvæðin úr Lénharði fógeta. Kvæði
eins og Kossinn, Konungurinn á svörtu eyjunum, Bólu-fijálmar 02
Sjötta ferð Sindbaðs eru fyrir löngu komin í tölu þeirra ljóða íslenzkra,
sem lifa. En sum hinna yngri kvæða í þessari bók eru einnig líkleg t>'
að komast það. Svo er um sálminn Lifsins fjöll, kvæði eins og A jól'
unum 1915 og Barn í myrkri.
Af Ijóðaþýðingum Einars H. Kvaran er þýðing hans á kvæðinu Rispa>
eftir Tennyson, langkunnust. Auk hennar eru hér nokkrar þýðingar, þar
á meðal Krossinn, fallegt kvæði eftir Chr. Richard, og Þolgæði úr Re'
signation eftir Longfellow. í síðara kvæðinu er þetta erindi, sem S®*1
staðið sem lýsing á lífsskoðun þýðandans:
Og dauöinn — hann er að eins breYÍing öllum,
09 okkar jarðlífs svið
er útborg ein frá Drottins dýrðar höllum
og dauðinn bara hlið.
Þessarar Hfsskoðunar verður hvað eftir annað vart í kvæðunum 1
þessari bók, eins og í sögum skáldsins, Ieikritum og hinum mörgu rd'
gerðum hans um andleg mál. Það er þessi lifsskoðun, sem hefur brugðiö
birtu og fegurð yfir bókmentastarf hans, og sú birta og fegurð leynir sér
heldur ekki í þessari litlu Ijóðabók. Sv. S.
Hans Fallada: HVAÐ NÚ — UNGI MAÐUR? íslenzk þýðing eftir
Magnús Ásgeirsson, Rvík 1934 (Alþýðuprentsmiðjan).
Eftir að saga þessi kom fyrst út á þýzku fyrir tveim árum, var sa9*
um hana, að engin skáldsaga, síðan Tíðindalaust á Westurvígstöðvunv'"
eftir Erich Maria Remarque, hefði vakið eins mikla athygli þar í la11^1
eins og þessi hóglega en áhrifamikla lýsing á lífsbaráttu þeirra Pinne-
bergs og konu hans, sem eru aðal-persónurnar í þessari bók. Líf unga
mannsins, Pinnebergs, er sífeld barátta við atvinnuleysið, og í þessari
baráttu berst hin unga kona við hlið hans, eins og hetja. Bókin var
þegar þýdd á mörg tungumál, þar á meðal á dönsku haustið 1933, °S
eftir þessari dönsku útgáfu og frumtextanum er íslenzka þýðingin gerÖ,
Höfundur sögunnar, Hans Fallada, er lögfræðingssonur frá Norður-
Þýzkalandi, fæddur 1893, og hefur fengist við allskonar störf, verið bóndu