Eimreiðin - 01.04.1941, Qupperneq 86
198
VIÐREISN NÝFUNDNALANDS
eimreiðin
fleiri fjölskyldur á vonarvöl og fóru á rikið — on the dole —
eða á dóluna eins og Vestur-íslendingar mundu segja.
Fjármálakollsigling Nflands hefur vakið töluverða athygli
meðal okkar Islendinga. í öðrum löndum hefur hins vegar
sjaldan verið minnzt á Nfland og eymdina þar. Má upp á það
heimfæra orð skáldsins:
„sykki ]iað i myrkan mar,
mundu fáir gráta“,
því Nfland er ekki meira þekkt i'iti um heiminn en Island var
þá, þegar þetta var kveðið.
I íslenzkum blöðum hefur verið haft eftir enskum blöð-
um, að ástandið á Nflandi væri enn, þrátt fyrir afskifti Breta,
hið aumasta, fólkið sylti og dæi í hrönnum úr berklum. Svo
var Bretum um kennt og þeim legið á hálsi að tíma ekki að
gefa vesalings fólkinu að eta, o. s. frv. Blaðamaður enskur úr
þeirra hópi, sem skrifa skandalafréttir til að vekja eftirtekt og
auka söiu á blaði sínu, birti ýmsan fréttaburð, með óhróðurs-
sögum af stjórnarnefndinni. Margt var satt sagt um neyð
manna, en fært á verri veg í garð nefndarinnar, og varhuga-
vert að trúa slíku. Fyrst framan af, er þessi nefnd settist að
sínum miklu völdum, í landi, þar sem áður hafði verið óstjórn
og margt í sukki, þótti hún strax of afskiptasöm og ráðríiv-
Og þegar sulturinn vildi ekki óðar víkja, eftir að Bretar voru
setztir við stýrið, varð hún fyrir hnútukasti og bakmælgi-
Annað slagið hefur svo verið farið í blöðin með öfgafréttir
út af þessu og þvilíku. Nefndin hefur farið sínu fram, hvað
sem hver sagði, og situr sem fastast. Hún veit vel, að „enginn
verður með orðum veginn“, og á Nflandi hefur vopnaburður
verið lagður niður fyrir löngu eins og á Islandi, og fólkið er
yfirleitt skikkanlegt meinleysisfólk.
I einu Beykjavikurblaðinu (apríl 1939) var gefið i skyn, að
Bretar vanræktu Nflendinga skammarlega og horfðu upp á
þá svelta og deyja úr hungursóttum án þess að hjálpa þeim
öðruvísi en með lítilsháttar fátækrastyrk (30 aurum á dag)-
Svo var vitnað í orð skáldsins: „Þegar býður þjóðarsómi,
þá á Bretland eina sál“, og kæmi það lof illa heim við það,
sem nú færi fram á Nflandi.