Eimreiðin - 01.04.1941, Side 110
222
ÓSÝNILEG ÁHRIFAÖFL
eimhbiðw
VI. KAFLI
Þegar ósýnilegu áhrifaöflin verða sýnileg.
Morguninn eftir fórum við
snemma á fætur, og' eftir að
hafa neytt matar og þannig
séð fyrir þörfum likamans,
bjuggum við okkur undir and-
lega hátið.
Meistarinn gat ekki að sér
gert að hafa orð á því, hve dá-
samlegt það andrúmsloft
væri, sem Riddaraforingjanum
fylgdi. Hann spurði þá, hvort
við hefðum ekki oft áður veitt
því eftirtekt, hve margvíslegur
blær fylgdi fólki. Þegar hr. X
kemur að heimsækja okkur,
fyllist kannske stofan af eirð-
arleysi og óvndi, en þegar svo
hr. Y kemur, breytist allt um-
hverfið í unað og yndishlýju.
Við köllum jietta viðmót eða
eitthvað þvi um líkt, en í
reyndinni er þetta ekkert ann-
að en hin ósýnilegu dáleiðandi
áhrifaöfl, sem hverjum manni
eru ásköpuð i einhverri mynd.
Enginn hefur í eins stórum
stíl dregið mennina að sér, svo
sem segullinn stálið, eins og
meistarinn Jesús Ivristur frá
Nazaret, fyrst og fremst með-
an hann lifði og starfaði hér
á jörð og svo æ síðan. Um leið
og segullinn dregur að sér
stálið, getur það einnig dregið
að sér aðra stálbúta, en að-
eins meðan það er undir áhrif-
um segulsins, því hverfi þau
áhrif, missir stálið afl sitt, og
allir bútarnir losna. Hin geysi-
legu sefjunaráhrif, sem Jesús
heitti og' lýst er í Nýja-testa-
mentinu, eru heillandi rann-
sóknarefni. Andlegar vakning-
ar, eins á liðnum öldum seni
enn þann dag í dag', eiga upp'
tök sín og orsakir undantekn-
ingarlaust í samskonar áhrifa-
valdi.
Segulorka sefjunar.
Sefjun er segulmögnuð og
getur verið mjög máttug. Ef þú
telur þér trú um, að þú sért að
verða veikur, þá verðurðu
veikur. Ef þú ert veikur, en
ásetur þér cinbeittlega, bæði
sjálfrátt og ósjálfrátt, að verða
heilbrigður, þá verðurðu heil'
brigður. Á þessu er þó einn
agnúi, og hann er sá, að fjar-
vitund manns andæfi viljaorku
meðvitundar hans að marki
fullrar heilsu, og þess vegna
takist ekki lækningin. En
þegar svo er ástatt, getur dá-
leiðsla komið að miklu haldi-
Annars er sannleikurinn sá.
að allt þetta má segja með einu